Háskóli Íslands

Tólf styrkir til nýnema við HÍ

Tólf styrkir verða veittir úr Afreks- og hvatningarsjóði stúdenta Háskóla Íslands 16. júní nk. Um er að ræða styrki til nemenda sem náð hafa afburðaárangri á stúdentsprófi og innritast í Háskóla Íslands. Styrkirnir í ár eru veittir með stuðningi Happdrættis Háskóla Íslands. Hver styrkur nemur 300 þúsund krónum auk þess sem skráningargjald í háskólann verður fellt niður hjá styrkþegum. Það nemur 45.000 krónum. 

Þetta er í fjórða sinn sem styrkir eru veittir úr Afreks- og hvatningarsjóði stúdenta við Háskóla Íslands en sjóðurinn var stofnaður árið 2008.

Umsóknarfrestur um styrki úr Afreks- og hvatningarsjóðnum rennur út 5. júní nk.

Stjórn sjóðsins velur styrkhafana en við valið er einkum tekið mið af framúrskarandi námsárangri á stúdentsprófi.  Einnig er horft til virkni í félagsstörfum og árangurs stúdenta á öðrum sviðum s.s. í listum og íþróttum.

Háskóli Íslands er stærsti og elsti háskóli landsins og jafnframt sá skóli sem býður upp á mesta fjölbreytni í námsvali.  Háskóli Íslands menntar Íslendinga til að takast á við krefjandi störf í framtíðinni og stuðlar þannig að bættum lífskjörum á Íslandi. Í Háskólanum eru stúdentar hvattir til að víkka sjóndeildarhringinn og nýta hæfileika sína til fulls.

Frekari upplýsingar um styrki og styrkveitingar veitir G. Ingibjörg Arnardóttir, starfsmaður vísindasviðs Háskóla Íslands, gia@hi.is, sími 525-5488.

Helstu upplýsingar um sjóðinn, umsóknarfrest o.fl. er að finna á heimasíðu hans.

Ýmsar upplýsingar um rannsóknar- og styrktarsjóði við Háskóla Íslands má finna á sjóðavef skólans.

Þú ert að nota: brimir.rhi.hi.is