Háskóli Íslands

Úthlutað í 42. sinn

Úthlutað var úr Minningarsjóði Þorvalds Finnbogasonar, stúdents, 21. desember 2011 í Norræna húsinu. Tilgangur sjóðsins er að styrkja stúdenta til náms við verkfræðideildir Háskóla Íslands. Reglur sjóðsins kveða á um að styrkþegi sé sá nemandi með hæstu meðaleinkunn eftir annað ár í námi við verkfræðideildir skólans. Styrkþegi í ár heitir Guðmundur Freyr Aðalsteinsson og er nemandi í vélaverkfræði.

Sjóðurinn var stofnaður af foreldrum Þorvalds, Sigríði Eiríksdóttur og Finnboga Rúti Þorvaldssyni, á 21 árs afmæli Þorvalds sonar þeirra, 21. desember 1952. Frú Vigdís Finnbogadóttir, systir Þorvalds, situr í stjórninni ásamt Kristínu Völu Ragnarsdóttur, sviðsforseta Verkfræði- og náttúruvísindasviðs og Kristínu Ingólfsdóttur, rektor Háskóla Íslands. Árið 1953 var fyrst úthlutað úr sjóðnum. Í ár var úthlutað til afburðanemanda í verkfræði í 42. sinn.

Fyrsti styrkþegi sjóðsins var Björn Kristinsson sem fór til náms við Tækniháskólann í Karlsruhe í Þýskalandi. Björn er prófessor emeritus við Rafmagns- og tölvuverkfræðideild Háskóla Íslands en um tíma gegndi hann stöðu deildarforseta Verkfræðideildar skólans. Fyrst kvenna til þess að hljóta styrk úr sjóðnum var Anna Soffía Hauksdóttir árið 1980, prófessor við Rafmagns- og tölvuverkfræði Háskóla Íslands. Ragnar Ólafsson, lektor í Rafmagns- og tölvuverkfræðideild hlaut einnig styrk úr sjóðnum árið 2001, ásamt öðrum úr starfsliði verkfræðideilda Háskóla Íslands. Margir úr röðum styrkþega sjóðsins hafa hlotið menntun erlendis, kennt við verkfræðideildir eða starfa hjá verkfræðistofum og hátæknifyrirtækjum.

Þú ert að nota: brimir.rhi.hi.is