Háskóli Íslands

Verðlaunaður fyrir afburðaárangur í verkfræði við HÍ

Sigurður Egilsson, BS-nemi í umhverfis- og byggingarverkfræði við Umhverfis- og byggingarverkfræðideild Háskóla Íslands, hefur hlotið styrk úr Minningarsjóði Þorvalds Finnbogasonar stúdents. Frú Vigdís Finnbogadóttir, systir Þorvalds, afhenti styrkinn við hátíðlega athöfn á Litla torgi.
 
Tilgangur sjóðsins er að styrkja efnilega nema í verkfræði við Háskóla Íslands til framhaldsnáms í verkfræði. Nemandi, sem er með hæstu meðaleinkunn eftir annað ár í grunnnámi, hlýtur styrkinn hverju sinni.
 
Sigurður Egilsson lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 2016 og hóf BS-nám í umhverfis- og byggingarverkfræði haustið 2016.
 
Minningarsjóður Þorvalds Finnbogasonar stúdents var stofnaður af foreldrum hans, Sigríði Eiríksdóttur og Finnboga Rúti Þorvaldssyni, fyrrverandi forseta verkfræðideildar Háskóla Íslands. Árlega er veitt viðurkenning úr sjóðnum til afburðanemanda í verkfræði við Háskóla Íslands en sjóðurinn var stofnaður á 21 árs afmæli Þorvalds, þann 21. desember 1952.
Þú ert að nota: brimir.rhi.hi.is