Háskóli Íslands

Viðurkenning fyrir framúrskarandi námsárangur í heilsugæsluhjúkrun

Sigríður Lilja Magnúsdóttir, BS nemandi í hjúkrunarfræði við Háskóla Íslands, hefur hlotið viðurkenningu úr Minningarsjóði Guðrúnar Marteinsdóttur fyrir framúrskrandi árangur í heilsugæsluhjúkrun. Þetta er í annað sinn sem nemenda er veitt viðurkenning úr sjóðnum.

Sigríður Lilja vann ýmis verkefni í námskeiðinu Heilsugæsluhjúkrun. Hún skrifaði til að mynda forvarnarverkefni um netfíkn og fékk góða umsögn fyrir það. Einnig vann Sigríður Lilja lífstílsverkefni um reykingar á meðgöngu þar sem hún studdist við heilsueflingarlíkan Nolu Pender.

Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, afhenti viðurkenninguna á ráðstefnunni Hjúkrun í fararbroddi sem haldin var á vegum Rannsóknastofnunar í hjúkrunarfræði (RSH) 14. janúar sl. Ráðstefnan var tileinkuð Guðrúnu Marteinsdóttur, fyrrverandi dósent við námsbraut í hjúkrunarfræði og einum af fyrstu fastráðnu kennurum námsbrautarinnar. Guðrún kenndi heilsugæsluhjúkrun og stjórnun og var frumkvöðull meðal íslenskra hjúkrunarfræðinga á sviði heilsugæslu- og fjölskylduhjúkrunar. Guðrún var í doktorsnámi við Háskólann á Rhode Island, þar sem hún vann að rannsókn um áhugahvöt meðal kvenna til líkamsþjálfunar, þegar hún lést árið 1994.

Minningarsjóður Guðrúnar Marteinsdóttur var stofnaður árið 2004. Skólasystur, starfsfélagar í námsbraut í hjúkrunarfræði og aðrir hjúkrunarfræðingar, sem átt höfðu samstarf við hana stofnuðu minningarsjóð í þakklætis- og virðingarskyni við Guðrúnu fyrir brautryðjendastörf í þágu hjúkrunarmenntunar á Íslandi.

Tilgangur sjóðsins er að veita nýútskrifuðum hjúkrunarfræðingum viðurkenningu fyrir góðan námsárangur á sviði heilsugæslu, að styrkja hjúkrunarfræðinga til framhaldsnáms og að styðja börn hinnar látnu til 25 ára aldurs.

Styrktarsjóðir Háskóla Íslands hafa umsjón með sjóðum og gjöfum sem Háskóla Íslands hafa verið ánafnaðar allt frá stofnun hans. Þeir starfa samkvæmt staðfestri skipulagsskrá og er þeim ætlað að styðja ýmis verkefni á ákveðnum fræðasviðum til hagsældar fyrir Háskóla Íslands, stúdenta eða starfsfólk. Frekari upplýsingar um sjóðina er að finna á sjóðavef háskólans.
 

Þú ert að nota: brimir.rhi.hi.is