Háskóli Íslands

Starfssjóður Guðfræðistofnunar Háskóla Íslands

Tilgangur sjóðsins er að stuðla að hvers konar starfsemi Guðfræðistofnunar Háskóla Íslands, sbr. 3. gr. reglugerðar Guðfræðistofnunar. Auk þess má til nefna fyrirlestrahald og námsstefnur, heimboð erlendra gesta og greiðslu ferðapeninga til kennara Guðfræðideildar, og hvað eina, sem verða má að gagni fyrir starfsemi stofnunarinnar á hverjum tíma.

Samkvæmt nýju skipulagi Háskóla Íslands frá því í febrúar 2008 er Guðfræðideild ekki lengur til. Deildin heitir nú Guðfræði- og trúarbragðafræðideild og heyrir undir Hugvísindasvið.

Sjóðurinn er stofnaður af Elli- og hjúkrunarheimilinu Grund með gjafabréfi dags. 28. desember 1982 í tilefni af 60 ára afmæli þess til minningar um stofnendur þess, Sigurbjörn Á. Gíslason, cand. theol., Flosa Sigurðsson trésmíðameistara, Harald Sigurðsson verslunarmann, Júlíus Árnason kaupmann og Pál Jónsson verslunarstjóra; enn fremur þá séra Halldór Jónsson, prófast á Hofi í Vopnafirði, séra Lárus Halldórsson fríkirkjuprest og séra Pál Þórðarson, prest í Njarðvík.

Sjóðurinn starfar samkvæmt staðfestri skipulagsskrá með sjálfstæða stjórn.

Stjórn Guðfræðistofnunar er jafnframt stjórn sjóðsins og tekur allar ákvarðanir varðandi val verkefna og ráðstöfun tekna.

Í stjórn sjóðsins sitja:

Staðfest skipulagsskrá (.pdf).

 

Þú ert að nota: brimir.rhi.hi.is