Styrktarsjóðir Háskóla Íslands hafa það markmið að veita styrki til stúdenta, fræðimanna og rannsókna við Háskóla Íslands og starfa flestir þeirra eftir staðfestum skipulagsskrám. Þeim er ætlað að styðja ýmis verkefni á ákveðnum fræðasviðum til hagsældar fyrir Háskóla Íslands, stúdenta eða starfsfólk.
Sjóðir sem styðja við verkefni sem tengjast Verkfræði- og náttúruvísindasviði eru:
- Almanakssjóður (1973)
- Eggertssjóður (1995)
- Menningar- og framfarasjóður Ludvigs Storr (1980)
- Minningarsjóður Aðalsteins Kristjánssonar til eflingar náttúruvísindum og efnafræði við HÍ (1978)
- Minningarsjóður Þorvalds Finnbogasonar stúdents (1952)
- Minningarsjóður Jóns Þorlákssonar verkfræðings (1952)
- Starfssjóður Verkfræðistofnunar Háskóla Íslands (1991)
- Tækjasjóður Verkfræðideildar – Landmælingar