Háskóli Íslands

Styrktarsjóður Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur

Tilgangur sjóðsins er að renna styrkum stoðum undir starfsemi Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur (SVF) og stuðla að vexti og viðgangi stofnunarinnar. Tilgangi sínum nær sjóðurinn með því að veita styrki, fjárframlög og annan stuðning við verkefni á eftirfarandi sviðum:

  1. Rannsóknir á erlendum tungumálum: kennslufræði erlendra mála, máltaka, táknfræði, þýðingarfræði, málfræði, málvísindi, menningarfræði, bókmenntir og notagildi tungumála í atvinnulífinu,
  2. Útgáfa ritverka á fræðasviðum SVF, ráðstefnu- og fyrirlestrahald,
  3. Þróun kennslugagna í erlendum tungumálum,
  4. Samvinna við erlendar stofnanir á fræðasviðum SVF,
  5. Önnur verkefni sem tengjast starfsemi SVF að mati sjóðsstjórnar.

Sjóðurinn var stofnaður árið 2003 af Háskóla Íslands og Kaupþingi banka. Einnig þeir aðilar sem gerðust sérstakir styrktaraðilar sjóðsins fyrir 15. apríl 2005 teljast gagnvart sjóðnum einnig til stofnenda hans. Þeir eru meðal annars: Ístak, Faxaflóahafnir, Icelandair, Hjalti Geir Kristjánsson, Hedorfs Fond, auk fjölmargra einstaklinga.

Breytingar voru gerðar á skipulagsskrá sjóðsins árið 2003, 2006 og 2016.

Fagráð Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur (SVF) skipar sjóðnum fimm manna stjórn, til tveggja ára í senn. Sjóðsstjórn kýs formann úr sínum hópi og skiptir að öðru leyti með sér verkum.

Aðalstjórn:

  • Steinþór Pálsson 
  • Birna Arnbjörnsdóttir, prófessor emeritus
  • Berglind Ásgeirsdóttir 

Til vara:

  • Pétur Knútsson

Sjóðurinn starfar samkvæmt staðfestri skipulagsskrá og hefur sjálfstæða stjórn.

Staðfest skipulagsskrá (pdf).

 

Þú ert að nota: brimir.rhi.hi.is