Háskóli Íslands

Nýsköpunarsjóður dr. Þorsteins Inga Sigfússonar

Tilgangur sjóðsins er að stuðla að auknum áhuga á nýsköpun og er hlutverk hans að styrkja efnilega frumkvöðla, nemendur eða vísindamenn, sem með einhverjum hætti sinna verkefnum eða rannsóknum er lúta að nýsköpun.
 
Sjóðurinn er stofnaður 4. júní 2020 til minningar um dr. Þorstein Inga Sigfússon (f. 4. júní 1954, d. 15. júlí 2019). Stofnandi sjóðsins er Bergþóra K. Ketilsdóttir, ekkja Þorsteins Inga.
 
Þorsteinn Ingi lauk doktorsnámi í eðlisfræði frá Cambridge-háskóla í Englandi árið 1983 og var kjörinn „Research Fellow“ við Darwin College árið áður. Hann hóf störf sem fræðimaður við Raunvísindastofnun Háskóla Íslands árið 1982 og síðar sem prófessor í eðlisfræði við háskólann. Fjöldi meistara- og doktorsnema stundaði rannsóknir undir hans leiðsögn. Þorsteinn Ingi vann ötullega að tengingu háskóla og atvinnulífs og kom að stofnun og stjórnarmennsku sprotafyrirtækja á mörgum sviðum. Hann var frumkvöðull á sviði orkurannsókna á Íslandi, sat í stjórn Íslenskrar nýorku og var eindreginn talsmaður þess að draga úr losun koltvíoxíðs í andrúmslofti. Um árabil var Þorsteinn Ingi formaður framkvæmdanefndar alþjóðasamtakanna IPHE (International Partnership for the Hydrogen Economy) og einnig meðlimur í Samráðsþingi Columbia-háskóla um loftslagsbreytingar (Roundtable on Climate Change). Þorsteinn Ingi varð forstjóri Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands (NMÍ) við stofnun hennar 2007. Þar beitti hann kröftum sínum til uppbyggingar víðtækrar frumkvöðlastarfsemi og miðlunar þekkingar. Eftir Þorstein Inga liggur fjöldi ritrýndra vísindagreina auk annarra skrifa. Árið 2004 var Þorsteinn Ingi sæmdur riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu fyrir vísindastörf og framlag til hátækniatvinnugreina. Hann hlaut rússnesku Alheimsorkuverðlaunin árið 2007 fyrir framlag sitt til vetnismála.
 
Hægt er að styrkja sjóðinn með peningagjöfum. Fjárhæðir má leggja inn á eftirfarandi bankareikning hjá Íslandsbanka: 596-26-1760. Kennitala Styrktarsjóða Háskóla Íslands er 571292-3199. Mikilvægt er að merkja greiðsluna nafni sjóðsins.  Netfang Styrktarsjóða Háskóla Íslands er sjodir@hi.is
 
Stjórn sjóðsins skipa:
  • Hermann Kristjánsson, verkfræðingur og frumkvöðull
  • Dr. Þór Sigfússon hagfræðingur
  • Dr. Guðrún Pétursdóttir dósent
Sjóðurinn starfar samkvæmt staðfestri skipulagsskrá og hefur sjálfstæða stjórn.
 
Þú ert að nota: brimir.rhi.hi.is