Frá undirritun stofnskrár Minningarsjóðs Erlendar Jónssonar og Mörtu Ágústsdóttur

Minningarsjóður Erlendar Jónssonar og Mörtu Ágústsdóttur

Tilgangur sjóðsins er að efla stöðu íslenskunnar almennt og styrkja nemendur í íslensku, bókmenntum og ritlist við Háskóla Íslands.

Frá undirritun stofnskrár Minningarsjóðs Erlendar Jónssonar og Mörtu Ágústsdóttur

Minningarsjóður Erlendar Jónssonar og Mörtu Ágústsdóttur

Tilgangur sjóðsins er að efla stöðu íslenskunnar almennt og styrkja nemendur í íslensku, bókmenntum og ritlist við Háskóla Íslands.

Sérstaklega skal stutt við verkefni er lúta að ritfærni og þjálfun nemenda við beitingu íslensks máls og við skapandi verkefni nemenda, s.s. ritlistarverkefni og hvers konar bókmenntasköpun á íslensku. Sjóðurinn er opinn nemendum bæði í grunn- og framhaldsnámi við Háskóla Íslands.

Sjóðurinn er stofnaður 3. desember 2024 til minningar um Erlend Jónsson, rithöfund, íslenskukennara og bókmenntagagnrýnanda, og konu hans, Mörtu Ágústsdóttur.

Sjóðurinn, stjórn og umsóknir

Rektor Háskóla Íslands skipar úthlutunarnefnd sjóðsins til þriggja ára í senn. Hlutverk úthlutunarnefndar er að halda utan um úthlutanir úr sjóðnum og kynningarmál þeim tengd, í samstarfi við umsjónarmann Styrktarsjóða Háskóla Íslands.  

Í úthlutunarnefnd sjóðsins sitja:

  • Ásta Kristín Benediktsdóttir, dósent í íslensku
  • Gunnþórunn Guðmundsdóttir, prófessor í bókmenntafræði
  • Rúnar Helgi Vignisson, prófessor í ritlist

 

Skipulagsskrá Minningarsjóðs Erlendar Jónssonar og Mörtu Ágústsdóttur (PDF).

Auglýsing um umsóknartímabil er sett á vef sjóða og á vef Háskóla Íslands. Einungis er opið fyrir umsóknir á auglýstum umsóknartíma.

Í umsókn um styrk þurfa eftirtalin atriði að koma fram:

  1. Nafn umsækjanda, kennitala, heimilisfang, sími og virkt netfang.
  2. Helstu atriði úr náms- og starfsferilsskrá umsækjanda.
  3. Heiti verkefnis, markmið og vísindalegt eða hagnýtt gildi.
  4. Hnitmiðuð lýsing á verkefninu, að hámarki 150 orð, sem verður nýtt til almennrar umfjöllunar og kynningar, hljóti verkefnið styrk.
  5. Veigameiri lýsing á verkefninu, að hámarki ein blaðsíða, þar sem fram kemur lýsing á markmiðinu með verkefninu, framkvæmd þess og mati á afrakstri, ásamt umfjöllun um hvernig verkefnið samrýmist markmiðum sjóðsins.
  6. Tímaáætlun og fjárhagsáætlun verkefnis.
  7. Ef um rannsóknarverkefni er að ræða skal gera grein fyrir helstu efnisþáttum þess.
  8. Samstarfsaðilar og aðrir styrkaðilar verkefnis ef við á.
  9. Hvernig styrkurinn verður notaður hljóti verkefnið styrk.
  10. Upplýsingar um annan fjárhagslegan stuðning.
  11. Nöfn, símanúmer og netföng mögulegra meðmælenda.
  12. Hámarkslengd umsóknar skal vera þrjár síður fyrir utan fylgiskjöl. Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál. Stjórn sjóðsins áskilur sér rétt til að veita fleiri en einum umsækjanda styrk, hafna öllum og/eða úthluta styrkjum með öðrum hætti.

Áhersla er lögð á vönduð fræðileg vinnubrögð við gerð umsóknar. Með hliðsjón af eðli sjóðsins og stærð má gera ráð fyrir að vel afmörkuð verkefni sem ljúka má á 1–2 árum njóti forgangs. Framhaldsumsóknir kunna að þurfa að víkja fyrir nýjum umsóknum.

Styrkþegi skal gera grein fyrir stöðu verkefnisins að ári liðnu í framvinduskýrslu og láta fylgja sýnishorn/tilvísun í það sem hefur verið unnið. Að verkefni loknu skal skila lokagreinargerð um niðurstöður og árangur ásamt ráðstöfun fjárins og eigi síðar en tveimur árum frá styrkveitingu.

Ef styrkur er ekki nýttur í samræmi við umsókn skal honum skilað. Ekki verður tekið við nýjum umsóknum frá þeim sem ekki hafa skilað framvinduskýrslu eða lokagreinargerð vegna fyrri styrkja á tilsettum tíma.

Styrkhafar

Upplýsingar koma síðar.

Fréttir af sjóðnum

Frá vinstri: Rúnar Helgi Vignisson, formaður stjórnar Minningarsjóðs Erlendar Jónssonar og Mörtu Ágústsdóttur, Ragnheiður G. Guðmundsdóttir styrkþegi, Kata Suemegi stykþegi og Jón Atli Benediktsson, rektor HÍ.
Nemar skoða bækur á bókasafni

Viltu styrkja?

Styrktarsjóðir eru mikil lyftistöng fyrir Háskóla Íslands. Skólinn hefur notið mikils velvilja af hálfu fjölmargra einstaklinga á undanförnum árum en þeir hafa af miklum rausnarskap lagt fé í styrktarsjóði sem allir miða að því að efla vísindarannsóknir og afla nýrrar þekkingar, samfélaginu til heilla.

Share