""

Verðlaunasjóður Sigurðar Helgasonar prófessors

Tilgangur sjóðsins er að verðlauna stærðfræðinema og nýútskrifaða stærðfræðinga fyrir góðan árangur og styrkja þá til frekari afreka í námi og rannsóknum.

""

Verðlaunasjóður Sigurðar Helgasonar prófessors

Tilgangur sjóðsins er að verðlauna stærðfræðinema og nýútskrifaða stærðfræðinga fyrir góðan árangur og styrkja þá til frekari afreka í námi og rannsóknum.

Sjóðurinn var stofnaður 2017 af Sigurði Helgasyni, prófessor í stærðfræði við Massachusetts Institute of Technology (MIT).

Sjóðurinn, stjórn og umsóknir

Sigurður Helgason fæddist á Akureyri 30. september 1927 og lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Akureyri 1945.

Eftir ársnám við verkfræðideild Háskóla Íslands hélt Sigurður til Danmerkur þar sem hann lauk Mag. Scient. prófi í stærðfræði frá Kaupmannahafnarháskóla 1952. Hann hélt þá til frekara náms við Princeton-háskóla í Bandaríkjunum og lauk þaðan doktorsprófi 1954. Sigurður kenndi við Princeton-háskóla, Chicago-háskóla og Columbia-háskóla og varð prófessor við MIT árið 1965. Eftir hann liggja fjölmargar bækur og vísindagreinar um stærðfræði.

Sigurður hefur verið heiðursdoktor við Háskóla Íslands frá árinu 1986 og er heiðursfélagi Íslenska stærðfræðafélagsins. Sig­urður Helga­son lést á heim­ili sínu í Belmont, Massachusetts í Banda­ríkj­un­um, 3. des­em­ber 2023, 96 ára að aldri.

Sjóðurinn er sjálfseignarstofnun utan atvinnurekstrar og er í umsjá og vörslu Styrktarsjóða
Háskóla Íslands og fellur undir sjóði sem lúta yfirstjórn Háskóla Íslands.

Í stjórn sjóðsins sitja:

  • Rögnvaldur Möller, prófessor og formaður stjórnar
  • Freyja Hreinsdóttir prófessor
  • Sverrir Örn Þorvaldsson stærðfræðingur

 

Staðfest skipulagsskrá Verðlaunasjóðs Sigurðar Helgasonar prófessors (PDF). 

Auglýsing um umsóknartímabil er sett á vef sjóða og á vef Háskóla Íslands. Einungis er opið fyrir umsóknir á auglýstum umsóknartíma.

Styrkhafar

2024

  • Hallgrímur Haraldsson
  • Hildur Gunnarsdóttir

Sjá umfjöllun um styrkhafa 2024.

2023

  • Jón Valur Björnsson

Sjá umfjöllun um styrkhafa 2023.

2022

  • Arnar Ágúst Kristjánsson
  • Kári Rögnvaldsson

Sjá umfjöllun um styrkhafa 2022.

2021

  • Svala Sverrisdóttir
  • Vigdís Gunnarsdóttir

Sjá umfjöllun um styrkhafa 2021.

2019

  • Atli Fannar Franklín

Sjá umfjöllun um styrkhafa 2019.

2018

  • Dagur Tómas Ásgeirsson
  • Garðar Andri Sigurðsson
  • Hjalti Þór Ísleifsson
  • Sölvi Rögnvaldsson

Sjá umfjöllun um styrkhafa 2018.

2017

  • Árni Freyr Gunnarsson
  • Pétur Rafn Bryde
  • Sigurður Jens Albertsson

Sjá umfjöllun um styrkhafa 2017.

Fréttir af sjóðnum

Fulltrúar styrkþega ásamt fulltrúum úr stjórn sjóðsins og rektor HÍ og forseta Verkfræði- og náttúruvísindasviðs. Frá vinstri: Sigurður Magnús Garðarsson, forseti Verkfræði- og náttúruvísindasviðs, Sverrir Örn Þorvaldsson, stjórnarmaður, Röngvaldur Möller stjórnarmaður, Anna Ben Blöndal, móðir Hallgríms, Silja Rún Guðmunsdóttir, móðir Hildar, Haraldur Hallgrímsson, faðir Hallgríms, og Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands.
Frá verðlaunaafhendingu í Hátíðasal.

Viltu styrkja?

Styrktarsjóðir eru mikil lyftistöng fyrir Háskóla Íslands. Skólinn hefur notið mikils velvilja af hálfu fjölmargra einstaklinga á undanförnum árum en þeir hafa af miklum rausnarskap lagt fé í styrktarsjóði sem allir miða að því að efla vísindarannsóknir og afla nýrrar þekkingar, samfélaginu til heilla.

Share