
Tveir doktorsnemar í lyfjafræði við Háskóla Íslands, Indverjarnir Varsha A. Kale og Vivek S. Gaware, fengu styrk úr Verðlaunasjóði Bergþóru og Þorsteins Schevings Thorsteinssonar lyfsala í gær, mánudaginn 4. júní. Rannsóknir þeirra hafa þegar leitt til nýrrar þekkingar í lyfjafræði.
Þetta er í sjöunda sinn sem viðurkenningar eru veittar úr sjóðnum til doktorsnema í lyfjafræði við Háskóla Íslands fyrir framúrskarandi rannsóknir. Heildarupphæð styrksins er 700.000 krónur og hlýtur hvor styrkhafi 350.000 krónur.
Rannsóknaverkefni Vörshu A. Kale miðar að því að einangra brjósksykrur úr íslenskum sæbjúgum og ákvarða sameindabyggingu þeirra. Einnig hefur hún ræktað sjávarbakteríur sem framleiða sykrukljúfandi lífhvata. Varsha hefur nú þegar einangrað þrjár mismunandi gerðir slíkra sykra og sýnt fram á ónæmisstýrandi virkni. Hagnýting verkefnisins felst í framleiðslu nýrra lífvirkra sykra og lífhvata. Verkefnið er unnið í samstarfi við Matís. Varsha er fædd á Indlandi árið 1985 og lauk meistaraprófi í lyfjaefnafræði árið 2004 frá S.R.T.M. háskólanum í Nanded á Indlandi. Hún hóf doktorsnám í lyfjavísindum við Háskóla Íslands árið 2009 og aðalleiðbeinandi hennar er Sesselja S. Ómarsdóttir, dósent við Lyfjafræðideild, en meðleiðbeinandi Guðmundur Óli Hreggviðsson, dósent við Líf- og umhverfisvísindadeild og fagstjóri hjá Matís.
Í doktorsverkefni sínu þróar Vivek S. Gaware sérstök nanóefni sem hægt er að örva með ljósi og eyða þannig krabbameinsæxlum. Verkefnið er unnið í samstarf við vísindamenn við Radium hospital í Ósló og fyrirtækið PCI Biotech. Vivek hefur nú þegar tekist að smíða og skilgreina vel á fimmta tug nýrra efna í þessu verkefni. Niðurstöður prófana í Noregi hafa gefið góða raun og benda til þess að efnin séu mjög virk gegn krabbameini. Vivek er einnig fæddur á Indlandi, árið 1981, og hann lauk meistaraprófi í lífrænni efnafræði frá Háskólanum í Pune í heimalandi sínu árið 2004. Vivek hóf doktorsnám í lyfjavísindum við Háskóla Íslands árið 2008 og aðalleiðbeinandi hans er Már Másson, prófessor við Lyfjafræðideild.
Um styrktarsjóðinn
Verðlaunasjóði Bergþóru og Þorsteins Schevings Thorsteinssonar lyfsala er ætlað að styrkja vísindaleg afrek á sviði lyfjafræði og rannsóknir og framhaldsnám í faginu. Sjóðurinn hefur stutt við kraftmikla uppbyggingu doktorsnáms í lyfjafræði við háskólann og gert nemendum kleift að kynna rannsóknir sínar erlendis og taka þátt í erlendu rannsóknasamstarfi.
Bent Scheving Thorsteinsson stofnaði Verðlaunasjóð Bergþóru og Þorsteins Schevings Thorsteinssonar í maí árið 2001 til minningar um föður sinn, Þorstein Scheving Thorsteinsson, lyfsala í Reykjavíkurapóteki, og eiginkonu hans, Bergþóru Patursson. Í desember 2007 bætti Bent um betur og lagði til viðbótarframlag við höfuðstól sjóðsins. Eigið fé sjóðsins er um 20 milljónir króna en samtals hefur Bent gefið Háskóla Íslands 60 milljónir króna með stofnun þriggja sjóða sem heyra undir Styrktarsjóði Háskóla Íslands. Hinir sjóðirnir tveir eru Verðlaunasjóður Óskars Þórðarsonar barnalæknis, sem veitir verðlaun fyrir ýmis störf á sviði barnalækninga, og Styrktarsjóður Margaretar og Bents Schevings Thorsteinssonar, sem styður rannsóknir á einelti.
Styrktarsjóðir Háskóla Íslands hafa umsjón með sjóðum og gjöfum sem Háskóla Íslands hafa verið ánafnaðar allt frá stofnun hans. Flestir þeirra starfa samkvæmt staðfestri skipulagsskrá og er þeim ætlað að styðja ýmis verkefni á ákveðnum fræðasviðum til hagsældar fyrir Háskóla Íslands, stúdenta eða starfsfólk.