""

Fjögur verkefni hafa hlotið styrk úr Sagnfræðisjóði Aðalgeirs Kristjánssonar og er þetta í annað skipti sem úthlutað er úr sjóðnum. Styrkhafar eru Árni Heimir Ingólfsson tónlistarfræðingur, Hafdís Erla Hafsteinsdóttir sagnfræðingur, Rósa Þorsteinsdóttir rannsóknardósent og Trausti Dagsson, verkefnastjóri og forritari, sem bæði starfa hjá Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum,  og Viðar Hreinsson, bókmenntfræðingur og sérfræðingur á Náttúruminjasafni Íslands. Heildarupphæð styrkja nemur 5,5 milljónum króna.

Markmið sjóðsins er að rannsaka hina sérstöku alþýðumenningu í Þingeyjarsýslu sem varð til á síðari hluta 19. aldar og í upphafi þeirrar tuttugustu, rætur hennar, einkenni, vöxt og viðgang.

Árni Heimir Ingólfsson hlýtur styrk til undirbúnings og útgáfu greinarinnar „Þjóðlög, kirkjusöngur og hljóðfæraleikur í Þingeyjarsýslu, 1870–1920“. Tónlistarlíf í Þingeyjarsýslu stóð í miklum blóma á 19. öld og fyrstu áratugum þeirrar tuttugustu. Þjóðlagasöngur var almennur og þaðan fékk séra Bjarni Þorsteinsson töluvert af efni í bók sína, Íslenzk þjóðlög, einkum frá Benedikt Jónssyni á Auðnum og Sigurveigu Árnadóttur í Lundi í Fnjóskadal. Einnig var þar allmikið af hljóðfærum og fjölgaði þeim mjög þegar leið á 19. öldina: langspil, flautur, fiðlur, orgel og harmóníkur. Fram til þessa hefur engin heildarrannsókn farið fram á tónlistarlífinu í Þingeyjarsýslu þótt margt hafi verið ritað um einstök atriði þess. Takmark verkefnisins er að kanna margvíslegar heimildir sem varðveist hafa og setja fram heildstæða mynd af tónlistarlífinu um þetta leyti, þegar gamall og nýr tími mættust í tónlistinni.

Hafdís Erla Hafsteinsdóttir hlýtur styrk til verkefnisins „Fagurfræði íþróttanna. Björn Jakobsson leikfimikennari og þingeysk ungmennafélög um aldamótin 1900“. Björn Jakobsson (1886–1961) frá Narfastöðum í Reykjadal var einn fyrsti Íslendingurinn sem gerði íþróttakennslu að ævistarfi. Hann lærði íþróttafræði í Danmörku, stofnaði síðar íþróttaskólann að Laugarvatni árið 1932 og var skólastjóri hans til ársins 1956. Björn tilheyrði fyrstu kynslóð íslenskra íþróttamanna sem kom að því að sníða íþróttum samfélagslegt hlutverk, finna þeim stað innan menntakerfisins og móta menningarlegt og félagslegt gildi þeirra og vægi. Í þessari rannsókn verður sjónum beint að uppvaxtarárum Björns og ungmennahreyfingunni í Þingeyjarsýslum, skoðað hvaða hugmyndir um hlutverk og tilgang íþrótta birtast til dæmis í handskrifuðum blöðum félaganna og hvernig þessar áherslur endurspeglast í hugmyndum Björns um tilgang og hlutverk íþróttahreyfingarinnar. Í rannsókninni verður rýnt í hugmyndafræðilegar og menningarlegar rætur íþróttaiðkunar á Íslandi í gegnum einn helsta drifkraft íslensku íþróttahreyfingarinnar á fyrri hluta tuttugustu aldar, Björn Jakobsson.

Trausti Dagsson og Rósa Þorsteinsdóttir hljóta styrk til útgáfu bókarinnar „Þjóðsögur Baldvins Jónatanssonar“. Baldvin (1860–1944) var fæddur á Bergstöðum í Aðaldal og bjó á ýmsum stöðum í Suður-Þingeyjarsýslu. Hann var þekktur fyrir hagmælsku sína og vísur en einnig fyrir að safna þjóðsögum. Handrit hans eru varðveitt á Héraðsskjalasafni Þingeyinga á Húsavík og hefur sumt af efni hans komið út í Grímu, Sagnablöðum Arnars á Steðja og Úr sagnabrunni: Þjóðsögur, sagnir og ævintýri Ásdísar Ólafsdóttur. Búið er að mynda öll handrit hans á Húsavík auk eins sem var á Héraðsskjalasafninu á Sauðárkróki. Í heild eru þetta 23 hefti frá árunum 1906–10 og vetrinum 1932–33. Nú er lokið við að skrifa upp stærstan hluta af safninu. Í safni Baldvins eru fjölmargar sagnir og ævintýri auk alþýðukveðskapar sem ekki finnst í öðrum þjóðsagnasöfnum og er í sögnum hans minnst á fjölmarga Þingeyinga sem voru á lífi á 19. öld og fram á byrjun þeirrar tuttugustu.

Viðar Hreinsson hlýtur styrk til verkefnis sem felst í útgáfu bókarinnar „Heiðra hin meiri. Náttúra og mannlíf á Mývatnsheiði“. Helgi Jónsson (1890-1969) frá Stafnsholti í Reykjadal er einn síðasti fulltrúi lifandi og merkrar handritamenningar sem lengi þreifst á Íslandi. Handrit hans eru varðveitt í 13 öskjum á þrem söfnum, á Akureyri, Húsavík og Handritadeild Landsbókasafns. Í þeim er kveðskapur, ættfræði, ævisögur, skáldsaga og fjöldi sagnaþátta og syrpur þátta um einstaklinga, ættir og byggðarlög.  Í bókinni verða birt þau varðveittu handrit Helga sem fjalla um sambúð manns og náttúru á Mývatnsheiði fyrr á öldum. Textarnir fjalla um náttúrufar, búskap og mannlíf með einstaklega litskrúðugum persónulýsingum. Verkefnið veitir fágæta innsýn í hugarfar og náttúruskilning fyrri tíma. Bókin mun geyma ítarlegan inngang sem rekur fræðilegt, hugmyndalegt og sögulegt samhengi verka Helga og verður því áhugaverð fyrir breiðan hóp lesenda. Fyrirhuguð er útgáfa í ritröðinni „Sýnisbók íslenskrar alþýðumenningar“.

Um sjóðinn

Sjóðurinn er stofnaður árið 2023 til minningar um Aðalgeir Kristjánsson (f. 30. maí 1924, d. 18. júlí 2021).

Aðalgeir lauk kandídatsprófi í íslenskum fræðum við Háskóla Íslands árið 1953, stundaði framhaldsnám við Óslóarháskóla 1954–55 og vann við rannsóknir og útgáfustörf í Kaupmannahöfn veturna 1955–58. Árið 1974 varði hann við Háskóla Íslands doktorsritgerð sína „Brynjólfur Pétursson, ævi og störf“. Hann var settur bókavörður við Landsbókasafn Íslands 1959–1961 en starfaði sem skjalavörður við Þjóðskjalasafn Íslands frá árinu 1961 til starfsloka og sem fyrsti skjalavörður frá 1970. Aðalgeir stundaði ritstörf og rannsóknir meðfram störfum á Þjóðskjalasafninu og að loknum embættisskyldum einbeitti hann sér að sagnfræðirannsóknum. Aðalgeir telst meðal virtustu og afkastamestu sagnfræðinga seinni tíma en sérsvið hans var 19. öldin og ekki síst stjórnmálasaga, menningarsaga og samskipti Dana og Íslendinga.

Sjóðurinn starfar samkvæmt staðfestri skipulagsskrá og hefur sjálfstæða stjórn.
Styrktarsjóðir Háskóla Íslands hafa umsjón með sjóðum og gjöfum sem Háskóla Íslands hafa verið ánafnaðar allt frá stofnun hans. Flestir þeirra starfa samkvæmt staðfestri skipulagsskrá og er þeim ætlað að styðja ýmis verkefni á ákveðnum fræðasviðum til hagsældar fyrir Háskóla Íslands, stúdenta eða starfsfólk. 
 

""
Styrkþegar og fulltrúar þeirra ásamt rektor og stjórn sjóðsins. MYND/Kristinn Ingvarsson