""

Tvö rannsóknaverkefni, sem miða að því annars vegar að bæta hreyfingu gervilima á ójöfnu undirlagi og hins vegar að þróa bóluefnablöndu sem á að efla ónæmissvörun nýbura við bólusetningum, hafa hlotið styrk úr STAFNI: Styrktarsjóði Brynju Einarsdóttur og Arnar Almarssonar við Háskóla Íslands. Þetta er í þriðja sinn sem úthlutað er úr sjóðnum og heildarupphæð styrkja nemur fjórum milljónum króna.

Markmið sjóðsins er að stuðla að menntun og víðsýni efnilegs námsfólks í raungreinum, heilbrigðisvísindum, verkfræði og tölvugreinum, s.s. innan gervigreindar og lífupplýsingafræði. Einkum er litið á umsóknir sem tengjast heilsu, líftækni og lyfjaþróun á einhvern hátt. Sjóðurinn veitir styrki til íslenskra nemenda við og frá Háskóla Íslands sem eru í framhaldsnámi hér heima eða erlendis og honum er ætlað að efla samvinnu milli ólíkra fræðasviða og hvetja námsfólk til að tengja saman mismunandi tæknisvið og -greinar.

Giacomo Zafalon, doktorsnemi í vélaverkfræði við Iðnaðarverkfræði-, vélaverkfræði- og tölvunarfræðideild HÍ, hlýtur styrk fyrir rannsóknarverkefnið „Design and development of EMG-controlled bionic prosthetic leg“. Verkefnið miðar að því að nýta vöðvarafrit til að fínstilla hreyfingu gervilima og er unnið í samstarfi Verkfræði- og náttúruvísindasviðs og Heilbrigðisvísindasviðs við stoðtækjafyrirtækið Össur. Áherslan er á gervihné en fólk með aflimun fyrir ofan hné glímir enn við verulegar áskoranir vegna skorts á eðlilegri stjórn á hnénu, einkum í ójöfnu og hallandi landslagi sem takmarkar sjálfstæði notenda. Hér er ætlunin að tengja hnéð við vöðvarafrit (EMG) til að leiðrétta þetta en með því að sameina EMG-stýringu við stöðubundin reiknirit örgjörvastýrðs gervihnés (PowerKnee™, Össur) geta notendur stýrt gervifæti í rauntíma, bæði við göngu og í óhefðbundnum aðstæðum, til dæmis þegar gengið er á ójöfnu undirlagi eða klifrað upp hallandi fleti. Auk þess mun tenging hné- og ökklahreyfinga tryggja eðlilegri hreyfingu og betri stuðning.

Giacomo lauk sameiginlegri meistaragáðu í mekatrónískri verkfræði frá Aalto-háskólanum í Helsinki og Háskólanum í Trento árið 2024. Hann hóf doktorsnám við Háskóla Íslands í nóvember 2024. Doktorsverkefnið er unnið undir handleiðslu Sigurðar Brynjólfssonar, prófessors við Iðnaðarverkfræði-, vélaverkfræði- og tölvunarfræðideild HÍ. Meðleiðbeinandi er Kristín Briem, prófessor við Læknadeild HÍ.

Hilmar Snorri Rögnvaldsson, meistaranemi við Læknadeild Háskóla Íslands, hefur hlotið styrk til rannsóknarverkefnis sem beinist að þróun bóluefnablöndu fyrir nýbura sem ætlað er að efla ónæmissvörun þeirra við bólusetningum. Sýkingar og öndunarfærasjúkdómar eru meðal helstu orsaka veikinda og dauðsfalla meðal nýbura og ungbarna á heimsvísu þrátt fyrir að oft sé hægt að fyrirbyggja slíka sjúkdóma með bólusetningum. Kítósan er náttúruleg fjölliða sem hefur vakið athygli innan lífvísinda vegna fjölbreyttra og álitlegra eiginleika sinna, en meginuppspretta kítósans er kítín, efni sem meðal annars finnst í ytri stoðgrind krabbadýra. Í verkefninu verður rannsökuð kítósanafleiðan N,N,N-trimethyl chitosan (TMC), þar sem TMC verður gefið nýburamúsum samhliða bóluefni gegn pneumókokkum til að skoða áhrif þeirra á ónæmissvörun nýbura. Markmið verkefnisins er að rannsaka betur hvort og hvernig TMC getur aukið ónæmissvörun nýbura og þannig stuðlað að þróun skilvirkari bóluefna sem henta þessum viðkvæma aldurshópi.

Hilmar Snorri útskrifaðist nýverið með B.Sc.-gráðu í líffræði frá Háskóla Íslands. Meistaraverkefnið er unnið við ónæmisfræðideild Landspítala undir handleiðslu Stefaníu P. Bjarnarson dósents og Auðar Önnu Aradóttur Pind nýdoktors í samstarfi við Má Másson, prófessor við Lyfjafræðideild.

Um sjóðinn

STAFN: Styrktarsjóður Brynju Einarsdóttur og Arnar Almarssonar var stofnaður 5. janúar 2024. Stofnendur sjóðsins, Brynja Einarsdóttir snyrtifræðingur og Örn Almarsson efnafræðingur, eru hafnfirsk hjón, búsett í Bandaríkjunum, en með rætur og starfsemi á Íslandi. Örn útskrifaðist úr efnafræði frá Háskóla Íslands árið 1988.

Sjóðurinn starfar samkvæmt staðfestri skipulagsskrá og í stjórn sjóðsins sitja Eiríkur Steingrímsson, prófessor við Heilbrigðisvísindasvið, sem jafnframt er formaður stjórnar, Margrét Helga Ögmundsdóttir, prófessor við Heilbrigðisvísindasvið, og Steinn Guðmundsson, prófessor við Verkfræði- og náttúruvísindasvið.

Styrktarsjóðir Háskóla Íslands hafa umsjón með sjóðum og gjöfum sem Háskóla Íslands hafa verið ánafnaðar allt frá stofnun hans. Flestir þeirra starfa samkvæmt staðfestri skipulagsskrá og er þeim ætlað að styðja ýmis verkefni á ákveðnum fræðasviðum til hagsældar fyrir Háskóla Íslands, stúdenta eða starfsfólk. 

""
Styrkþegar ásamt rektor, stjórn sjóðsins og öðrum af stofnendum sjóðsins. Frá vinstri: Eiríkur Steingrímsson, Steinn Guðmundsson, Silja Bára R. Ómarsdóttir, Hilmar Snorri Rögnvaldsson, Giacomo Zafalon, Örn Almarsson og Örn Almarsson. MYND/Kristinn Ingvars