Ragna María Sverrisdóttir, nemandi á þriðja ári í stærðfræði við Raunvísindadeild Háskóla Íslands, hefur hlotið viðurkenningu úr Verðlaunasjóði Sigurðar Helgasonar prófessors fyrir frábæran námsárangur. Upphæð verðlaunanna nemur 15.000 bandaríkjadölum, jafnvirði 1,8 milljónum króna.
Ragna María Sverrisdóttir lauk stúdentsprófi frá Verzlunarskóla Íslands árið 2024. Í framhaldsskóla tók hún þátt í ýmsum raungreinakeppnum og keppti á bæði Ólympíuleikunum í stærðfræði og eðlisfræði. Ragna hefur unnið við dæmatímakennslu í Háskóla Íslands og tekið þátt í að undirbúa nemendur Verzlunarskólans fyrir stærðfræðikeppnir. Árið 2025 var hún í sumarnámi við Stanford-háskóla í Kaliforníu og sumarið 2026 starfaði hún hjá hugbúnaðarfyrirtækinu APRÓ. Eftir útskrift stefnir Ragna á stærðfræðitengt nám erlendis.
Um sjóðinn
Verðlaunasjóður Sigurðar Helgasonar prófessors veitir viðurkenningar til stærðfræðinema og nýútskrifaðra stærðfræðinga fyrir góðan námsárangur og styrkir þá til frekari afreka í námi og rannsóknum.
Stofnandi sjóðsins er Sigurður Helgason. Hann var prófessor í stærðfræði við Tækniháskóla Massachusetts (MIT) í Boston. Sigurður fæddist á Akureyri 30. september 1927 og lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Akureyri 1945. Eftir árs nám við verkfræðideild Háskóla Íslands hélt Sigurður til Danmerkur og lauk Mag.Scient.-prófi í stærðfræði 1952 frá Kaupmannahafnarháskóla. Hann hélt þá til frekara náms við Princeton-háskóla í Bandaríkjunum og lauk þaðan doktorsprófi 1954 og kenndi síðan við MIT, Princeton-háskóla, Chicago-háskóla og Columbia-háskóla. Sigurður varð prófessor við MIT árið 1965 og eftir hann liggja fjölmargar bækur og vísindagreinar um stærðfræði. Hann var heiðursdoktor við Háskóla Íslands frá árinu 1986 og einnig heiðursfélagi Íslenska stærðfræðafélagsins. Sigurður lést árið 2023.
Styrktarsjóðir á borð við Verðlaunasjóð Sigurðar Helgasonar eru mikil lyftistöng fyrir Háskóla Íslands.
Skólinn hefur notið mikils velvilja af hálfu fjölmargra einstaklinga í gegnum árin en þeir hafa af miklum rausnarskap lagt fé í styrktarsjóði sem allir miða að því að hvetja nemendur skólans til dáða, efla vísindarannsóknir og afla nýrrar þekkingar, samfélaginu til heilla.