Mynd af Aðalbyggingu HÍ í rökkrinu. Tveim flöggum íslenska fánans er flaggað í fulla stöng sitthvorumegin við aðalinnganginn og ljóskastarar lýsa mjúklega upp bygginguna.

Sjóður Páls Guðmundssonar frá Rjúpnafelli

Tilgangur sjóðsins er í samræmi við tilgang gjafar Páls í erðaskrá hans – að efla tengsl milli Háskóla Íslands og Háskólans í Manitoba í Kanada.

Mynd af Aðalbyggingu HÍ í rökkrinu. Tveim flöggum íslenska fánans er flaggað í fulla stöng sitthvorumegin við aðalinnganginn og ljóskastarar lýsa mjúklega upp bygginguna.

Sjóður Páls Guðmundssonar frá Rjúpnafelli

Tilgangur sjóðsins er í samræmi við tilgang gjafar Páls í erðaskrá hans – að efla tengsl milli Háskóla Íslands og Háskólans í Manitoba í Kanada.

Tilganginum skal framfylgt með því að stofna sjóð sem veitir stúdentum og fræðimönnum annars skólans styrki til rannsókna eða náms við hinn skólann eða styrkir verkefni sem falla að tilgangi sjóðsins með öðrum hætti.

Sjóðurinn er byggður á gjöf Páls Guðmundssonar frá Rjúpnafelli til Háskóla Íslands árið 1971 skv. erfðaskrá hans. Páll var fæddur 26. júní 1887. Hann var síðar bóndi í Saskatchewan í Kanada. Páll lést 11. maí árið 1966.

Stofndagur sjóðsins telst 1. desember 2003.

Sjóðurinn, stjórn og umsóknir

Með stjórn sjóðsins fer rektor Háskóla Íslands og ákveður hann um úthlutun úr sjóðnum hverju sinni samkvæmt tilgangi hans.

Sjóðurinn starfar samkvæmt staðfestri skipulagsskrá (.pdf).

Auglýsing um umsóknartímabil er sett á vef sjóða og á vef Háskóla Íslands. Einungis er opið fyrir umsóknir á auglýstum umsóknartíma.

Styrkhafar

2024

  • Styrkur til kynningar á greinasafni um íslenskan menningararf í Vesturheimi

Sjá umfjöllun um styrkhafa 2024

2023

  • Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum
  • Birna Bjarnadóttir, rannsóknasérfræðingur við Mála- og menningardeild HÍ
  • Ingi Björn Guðnason, bókmenntafræðingur og staðarhaldari á Hrafnseyri.

Sjá umfjöllun um styrkhafa 2023

2021

  • Birna Bjarnadóttir, rannsóknalektor við Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur

Sjá umfjöllun

  • Styrkur til útgáfu greinasafns um íslenskan menningararf í Vesturheimi

Sjá umfjöllun

2013

  • Dr. Birna Bjarnadóttir

Sjá umfjöllun um styrkhafa 2013

2011

  • Móeiður Júníusdóttir, doktorsnemi í guðfræði

Sjá umfjöllun um styrkhafa 2011

2009

  • Bergljót Kristjánsdóttir, prófessor í íslenskum bókmenntum

Sjá umfjöllun um styrkhafa 2009

2007

  • SDr. Birna Bjarnadóttir

Sjá umfjöllun um styrkhafa 2007

Fréttir af sjóðnum

Frá afhendingu styrksins á rektorsskrifstofu. Frá vinstri á myndinni eru Höskuldur Þráinsson, Jón Atli Benediktsson, Birna Arnbjörnsdóttir og Úlfar Bragason.
Styrkþegar og fulltrúar þeirra ásamt rektor við úthlutun styrkjanna á rektorsskrifstofu. Frá vinstri: Jón Atli Benediktsson, Guðrún Björk Guðsteinsdóttir, Birna Bjarnadóttir og Ásdís Rósa Magnúsdóttir.

Viltu styrkja?

Styrktarsjóðir eru mikil lyftistöng fyrir Háskóla Íslands. Skólinn hefur notið mikils velvilja af hálfu fjölmargra einstaklinga á undanförnum árum en þeir hafa af miklum rausnarskap lagt fé í styrktarsjóði sem allir miða að því að efla vísindarannsóknir og afla nýrrar þekkingar, samfélaginu til heilla.

Deila