Margareta og Bent Scheving Thorsteinsson.

Verðlaunasjóður Óskars Þórðarsonar læknis

Markmið sjóðsins er að veita verðlaun fyrir vísindaleg afrek, rannsóknir, ritgerðir og skylda starfsemi á sviði barnalækninga.

Margareta og Bent Scheving Thorsteinsson.

Verðlaunasjóður Óskars Þórðarsonar læknis

Markmið sjóðsins er að veita verðlaun fyrir vísindaleg afrek, rannsóknir, ritgerðir og skylda starfsemi á sviði barnalækninga.

Bent Scheving Thorsteinsson stofnaði Verðlaunasjóð Óskars Þórðarsonar 25. september 2000 með veglegri peningagjöf til minningar um fóstra sinn, Óskar Þórðarson barnalækni, f. 14. júní 1897, d. 25. september 1958.

Sjóðurinn er einn þriggja sjóða sem Bent hefur stofnað við Háskóla Íslands. Hinir eru Verðlaunasjóður Bergþóru og Þorsteins Scheving Thorsteinssonar, föður Bents, til styrktar rannsóknum á sviði lyfjafræði, og Styrktarsjóður Margaret og Bent Scheving Thorsteinssonar, sem ætlað er að styðja við rannsóknir á sviði eineltis.

Það er ósk gefanda að verðlaunum sé úthlutað við hátíðlega opinbera athöfn og þess þá getið í hverra minningu þau eru veitt, og fram tekið hverjum veitt, upphæð verðlauna og framlag verðlaunahafa.

Sjóðurinn, stjórn og umsóknir

Óskar Þórðarson barnalæknir fæddist 1897 og brautskráðist frá Læknadeild Háskóla Íslands 1927. Hann lærði fæðingahjálp í Danmörku 1927 og stundaði sérnám í barnalækningum í Austurríki og Þýskalandi á þriðja og fjórða áratug síðustu aldar.

Óskar stofnaði læknastofu í Reykjavík árið 1930 og rak hana til dauðadags árið 1958. Samhliða var hann skólalæknir Austurbæjarskólans og Laugarnesskólans, læknir barnaheimilis Sumargjafar og eftirlitslæknir við barnaheimili Reykjavíkur.

Óskar kvæntist Guðrúnu Sveinsdóttur frá Hrauni á Skaga, móður Bents, stofnanda verðalaunasjóðsins, árið 1928.

Ekki er starfandi stjórn í sjóðnum.

Rektor ákveður úthlutun úr sjóðnum hverju sinni samkvæmt skipulagsskrá og hefur um það frjálsar hendur. Skal hann leita samráðs við forseta Læknadeildar.

Staðfest skipulagsskrá Verðlaunasjóðs Óskars Þórðarsonar (PDF).

Auglýsing um umsóknartímabil er sett á vef sjóða og á vef Háskóla Íslands. Einungis er opið fyrir umsóknir á auglýstum umsóknartíma.

Styrkhafar

2022

  • Berglind Jónsdóttir,
  • Snorri Freyr Dónaldsson
  • Guðmundur Vignir Sigurðsson 

Sjá umfjöllun um styrkhafa 2022.

2019

  • Samúel Sigurðsson
  • Sigríður Júlía Quirk
  • Elías Sæbjörn Eyþórsson

Sjá umfjöllun um styrkhafa 2019.

2018

  • Sigurður Sverrir Stephensen
  • Judith Amalía Guðmundsdóttir 
  • Snjólaug Sveinsdóttir

Sjá umfjöllun um styrkhafa 2018.

2017

  • Orri Þór Ormarsson
  • Valýr Stefánsson Thors

Sjá umfjöllun um styrkhafa 2017.

2015

  • Ragnar Bjarnason og Tryggvi Helgason
  • Sigurveig Þóra Sigurðardóttir og Michael Clausen

​​​​​​​

Sjá umfjöllun um styrkhafa 2015.

2013

  • Þórólfur Guðnason
  • Ingibjörg Georgsdóttir
  • Þórður Þórkelsson​​​​​​​

Sjá umfjöllun um styrkhafa 2013.

2007

  • Viðar Eðvarðsson​​​​​​​

Sjá umfjöllun um styrkhafa 2007.

2003

  • Sigurður Kristjánsson​​​​​​​

Sjá umfjöllun um styrkhafa 2003.

2002

  • Hákon Hákonarson ​​​​​​​

Sjá umfjöllun um styrkhafa 2002.

2001

  • Ingibjörg Georgsdóttir​​​​​​​

Fréttir af sjóðnum

Verðlaunahafar ásamt rektor og stjórn og starfsfólki sjóðsins.
Verðlaunahafar og fulltrúar þeirra við úthlutun í Norræna húsinu í gær. Frá vinstri: Sigríður Júlía Quirk, Elías Sæbjörn Eyþórsson og Deborah Olafsson, sem tók við viðurkenningunni fyrir hönd sonar síns, Samúels Sigurðssonar.

Viltu styrkja?

Styrktarsjóðir eru mikil lyftistöng fyrir Háskóla Íslands. Skólinn hefur notið mikils velvilja af hálfu fjölmargra einstaklinga á undanförnum árum en þeir hafa af miklum rausnarskap lagt fé í styrktarsjóði sem allir miða að því að efla vísindarannsóknir og afla nýrrar þekkingar, samfélaginu til heilla.

Deila