Sigríður Lárusdóttir með Háskóla Íslands aðalbyggingu í bakgrunn

Sjóður Sigríðar Lárusdóttur

Tilgangur sjóðsins er að efla rannsóknir á sviði bæklunarlækninga. Sérstök áhersla er lögð á rannsóknir á meðfæddum göllum í mjaðmalið svo sem ættgengi þeirra, tíðni og afleiðingum. Veita má styrki til fyrirlestrahalds eftir því sem sjóðstjórnin telur ástæður til.

Sigríður Lárusdóttir með Háskóla Íslands aðalbyggingu í bakgrunn

Sjóður Sigríðar Lárusdóttur

Tilgangur sjóðsins er að efla rannsóknir á sviði bæklunarlækninga. Sérstök áhersla er lögð á rannsóknir á meðfæddum göllum í mjaðmalið svo sem ættgengi þeirra, tíðni og afleiðingum. Veita má styrki til fyrirlestrahalds eftir því sem sjóðstjórnin telur ástæður til.

Sjóðurinn var stofnaður 27. ágúst 2003 af Sigríði Lárusdóttur f. 5. maí 1918 til minningar um þá einstaklinga sem hafa átt um sárt að binda vegna meðfæddra sjúkdóma í mjöðm en Sigríður hafði átt við þann sjúkdóm að stríða frá fæðingu.

Sjóðurinn, stjórn og umsóknir

Sigríður Lárusdóttir fæddist í Saurbæ þann 5. maí 1918. Sigríður bjó æskuár sín á Siglufirði hvar hún lærði hattasaum. Hún fluttist til Reykjavíkur árið 1950 og starfaði við iðn sína.  Árið 1955 stofnaði hún og rak tískuverslunina Hrund til ársins 1973 er hún réð sig sem saumakonu hjá Vogafelli. 

Sigríður var ein af tíu stofnendum kvenfélagsins Valkyrjur sem stofnað var á Siglufirði 2. júní 1929. Eftir að hún flutti til Reykjavíkur starfaði hún í Kvenskátafélagi Reykjavíkur og sat í stjórn þess félags í nokkur ár. Sigríður var einnig í stjórn Bandalags íslenskra skáta. 

Árið 1988 flutti Sigríður til Hafnarfjarðar og bjó þar til æviloka 2006.

Sigríður var ógift og barnlaus og ákvað árið 2003 að gefa að sér látinni allar sínar veraldlegar eigur til Háskóla Íslands og var þá stofnaður Sjóður Sigríðar Lárusdóttur. 

Sjóðurinn er til minningar um alla þá sem eiga um sárt að binda vegna meðfæddra sjúkdóma í mjöðm og tilgangur hans er að efla rannsóknir á sviði bæklunarlækninga. Sérstaklega er lögð áhersla á rannsóknir á meðfæddum göllum í mjarmarlið, svo sem ættgengi, tíðni og afleiðingar. 

Sigríður fæddist með sjúkdóm í báðum mjaðmaliðum en um það var ekki vitað fyrr en hún byrjaði að ganga. Leitað var til lækna, bæði hér heima og í Danmörku, en ekki var talið ráðlegt að framkvæma aðgerð og því bjóð Sigríður við mikla hreyfihömlun allt sitt líf. 

Við stofnun sjóðsins lét Sigríður í ljós þá einlægu ósk að bornir og óbornir gætu notið góðs af rannsóknum fyrir tilstilli sjóðsins. Sigríður var mikill mannvinur og með stofnun sjóðsins vildi hún leggja sitt af mörkum til að forða börnum frá þeim raunum sem hún hafði sjálf mátt reyna. 

Sjóðurinn starfar samkvæmt staðfestri skipulagsskrá og hefur sjálfstæða stjórn.

Í stjórn sjóðsins sitja:

  • Þorvaldur Ingvarsson, formaður stjórnar og fulltrúi Sigríðar, thi@fsa.is.
  • Vigdís Pétursdóttir, stjórnarmaður og fulltrúi Sigríðar, vigpet@landspitali.is.
  • Þórarinn Guðjónsson, forseti Læknadeildar, tgudjons@hi.is
     

Staðfest skipulagsskrá Sjóðs Sigríðar Lárusdóttur (PDF). 

Auglýsing um umsóknartímabil er sett á vef sjóða og á vef Háskóla Íslands. Einungis er opið fyrir umsóknir á auglýstum umsóknartíma.

Óskað er eftir að í umsókn komi fram:

  1. Nafn umsækjanda, kennitala, heimilisfang, sími og virkt netfang.
  2. Helstu atriði úr náms- og starfsferli umsækjanda.
  3. Heiti rannsóknarverkefnisins, markmið og vísindalegt gildi þess. Hnitmiðuð lýsing á verkefninu, 2-3 málsgreinar, sem verður nýtt til almennrar umfjöllunar og kynningar hljóti verkefnið styrk.
  4. Veigameiri lýsing á rannsóknarverkefninu, ein blaðsíða að hámarki. Fram komi hvernig verkefninu er ætlað að auka við núverandi þekkingu á efninu og hvernig verkefnið samræmist markmiðum sjóðsins. Sé ætlunin að óska eftir stuðningi við hluta af stærra verkefni skal koma fram til hvaða þáttar sótt er um.
  5. Tímaáætlun, fjárhagsáætlun og yfirlit yfir helstu samstarfsaðila í verkefninu. Upplýsingar um annan fjárhagslegan stuðning við verkefnið komi einnig fram.
  6. Áætlun um námsframvindu ef umsækjandi er námsmaður.
  7. Nöfn, símanúmer og netföng þeirra sem leita má til um meðmæli.

Hámarkslengd umsóknar er þrjár síður. Farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál. 

Styrkþega ber að skila sjóðnum skriflegri greinargerð um stöðu námsins innan árs frá afhendingu styrks. 

Stjórn áskilur sér rétt til að veita fleiri en einum umsækjanda styrk, hafna öllum og/eða úthluta styrkjum með öðrum hætti.

Styrkhafar

2023

  • Halldór Jónsson jr.
  • Ágúst Ingi Guðnason
  • Elías Þór Guðbrandsson
  • Mariella Tsirilaki

Sjá umfjöllun um styrkhafa 2023.

2022

  • Halldór Jónsson jr.
  • Magnús Gottfreðsson
  • Signý Lea Gunnlaugsdóttir
  • Sara Þöll Halldórsdóttir

Sjá umfjöllun um styrkhafa 2022.

2021

  • María Sigurðardóttir
  • Halldór Jónsson jr.
  • Lotta María Ellingsen

Sjá umfjöllun um styrkhafa 2021

2020

  • María Sigurðardóttir
  • Halldór Jónsson jr.
  • Rafn Benediktsson

Sjá umfjöllun um styrkhafa 2020.

2019

  • María Sigurðardóttir
  • Sigrún Sunna Skúladótti

Sjá umfjöllun um styrkhafa 2019.

2018

  • Kristín Briem
  • María Sigurðardóttir

Sjá umfjöllun um styrkhafa 2018.

2016

  • Kristín Briem
  • Halldór Jónsson jr.

Sjá umfjöllun um styrkhafa 2016.

2015

  • Stefán Ólafsson

Sjá umfjöllun um styrkhafa 2015.

2014

  • Eyþór Örn Jónsson
  • Sigurbergur Kárason
  • Björn Guðbjörnsson

Sjá umfjöllun um styrkhafa 2014.

2013

  • Sigurveig Pétursdótti
  • Guðrún Lilja Óladóttir

​​​​Sjá umfjöllun um styrkhafa 2013.

Fréttir af sjóðnum

Frá vinstri: Vigdís Pétursdóttir stjórnarmaður, Þorvaldur Ingvarsson, formaður stjórnar, Halldór Jónsson jr., prófessor og styrkhafi, Sædís Sævarsdóttir, varaforseti Læknadeildar og stjórnarmaður, og Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands.
Frá vinstri: Vigdís Pétursdóttir, stjórnarmaður, Jón Atli Benediktsson rektor HÍ, Halldór Jónsson jr., styrkhafi, Magnús Gottfreðsson, styrkhafi, Tinna Reynisdóttir, tók við f.h. Söru Þallar Halldórsdóttur, styrkhafa, Þorvaldur Ingvarsson, formaður stjórnar, Þórarinn Guðjónsson, forseti læknadeildar HÍ, og Hel

Viltu styrkja?

Styrktarsjóðir eru mikil lyftistöng fyrir Háskóla Íslands. Skólinn hefur notið mikils velvilja af hálfu fjölmargra einstaklinga á undanförnum árum en þeir hafa af miklum rausnarskap lagt fé í styrktarsjóði sem allir miða að því að efla vísindarannsóknir og afla nýrrar þekkingar, samfélaginu til heilla.

Deila