""

Tækjasjóður Verkfræðideildar – Landmælingar

Sjóður þessi er á vegum verkfræðideildar Háskólans. Stúdentar á öðru námsári hafa tekið að sér mælingar fyrir Reykjavíkurborg og fleiri gegn umsömdu gjaldi er að mestu hefur runnið til þeirra stúdenta er að verkinu hafa unnið.

""

Tækjasjóður Verkfræðideildar – Landmælingar

Sjóður þessi er á vegum verkfræðideildar Háskólans. Stúdentar á öðru námsári hafa tekið að sér mælingar fyrir Reykjavíkurborg og fleiri gegn umsömdu gjaldi er að mestu hefur runnið til þeirra stúdenta er að verkinu hafa unnið.

Úr handbókinni „Sjóðir“ í vörslu Háskóla Íslands

Samkvæmt breyttu skipulagi Háskóla Íslands frá febrúar 2008 er verkfræðideild ekki til. Verkfræðideild hefur verið skipt í þrjár deildir: Iðnaðarverkfræði-, vélaverkfræði og tölvunarfræðideild,  Rafmagns – og tölvuverkfræðideild og Umhverfis- og byggingarverkfræðideild, sem allar heyra undir Verkfræði- og náttúruvísindasvið.

Háskólinn hefur lánað tæki og haft eftirlit með mælingunum og reiknað sér fyrir það þóknun, er numið hefur 10% hin síðari ár og runnið hefur í sjóðinn.

Þóknunin er fyrir tækjaleigu og aðstöðu við úrvinnslu og teiknun uppdrátta undir leiðsögn kennara. Úr sjóðnum hefur svo verið greitt andvirði nýrra tækja og viðhaldskostnaður. 

Árið 1974 var unnið við mælingar fyrir Kópavogskaupstað en þóknunin fyrir það ár er enn ógreidd.

Skipulagsskrá og umsóknir

Auglýsing um umsóknartímabil er sett á vef sjóða og á vef Háskóla Íslands. Einungis er opið fyrir umsóknir á auglýstum umsóknartíma.

Viltu styrkja?

Styrktarsjóðir eru mikil lyftistöng fyrir Háskóla Íslands. Skólinn hefur notið mikils velvilja af hálfu fjölmargra einstaklinga á undanförnum árum en þeir hafa af miklum rausnarskap lagt fé í styrktarsjóði sem allir miða að því að efla vísindarannsóknir og afla nýrrar þekkingar, samfélaginu til heilla.

Deila