Valentin Oliver Loftsson, BS-nemi í hugbúnaðarverkfræði, er hér ásamt Vigdísi Finnbogadóttur, fyrrverandi forseta og systur Þorvalds Finnbogasonar, við úthlutun viðurkenningarinnar á Háskólatorgi.

Valentin Oliver Loftsson, BS-nemi í hugbúnaðarverkfræði, hefur hlotið styrk úr Minningarsjóði Þorvalds Finnbogasonar stúdents. Frú Vigdís Finnbogadóttir, systir Þorvalds, afhenti styrkinn við hátíðlega athöfn á Litla torgi í dag, fimmtudaginn 21. desember.

Tilgangur sjóðsins er að styrkja efnilega nema í verkfræði við Háskóla Íslands til framhaldsnáms í verkfræði. Nemandi, sem er með hæstu meðaleinkunn eftir annað ár í grunnnámi, hlýtur styrkinn hverju sinni. 

Valentin Oliver Loftsson lauk stúdentsprófi frá Verzlunarskóla Íslands vorið 2014 og hóf BS-nám í hugbúnaðarverkfræði haustið 2015. Hann hlaut styrk úr Afreks- og hvatningarsjóði stúdenta Háskóla Íslands fyrir háskólaárið 2015-2016.

Um sjóðinn

Minningarsjóður Þorvalds Finnbogasonar stúdents var stofnaður af foreldrum hans, Sigríði Eiríksdóttur og Finnboga Rúti Þorvaldssyni, fyrrverandi forseta verkfræðideildar Háskóla Íslands. Árlega er veitt viðurkenning úr sjóðnum til afburðanemanda í verkfræði við Háskóla Íslands. Sjóðurinn var stofnaður á 21 árs afmæli Þorvalds, þann 21. desember 1952.

Styrktarsjóðir Háskóla Íslands hafa umsjón með sjóðum og gjöfum sem Háskóla Íslands hafa verið ánafnaðar allt frá stofnun hans. Flestir þeirra starfa samkvæmt staðfestri skipulagsskrá og er þeim ætlað að styðja ýmis verkefni á ákveðnum fræðasviðum til hagsældar fyrir Háskóla Íslands, stúdenta eða starfsfólk.

Frá styrkveitingu. Mynd: Árni Sæberg