Blómaskreyting

Þann 31. janúar árið 2007 voru veittar tvær viðurkenningar úr Verðlaunasjóði Bergþóru og Þorsteins Scheving Thorsteinssonar lyfsala. Úthlutunin fór fram við hátíðlega athöfn í Skólabæ.

Ögmundur Viðar Rúnarsson og Elsa Steinunn Halldórsdóttir doktorsnemar í lyfjafræði við Háskóla Íslands, hlutu viðurkenningu úr Verðlaunasjóði Bergþóru og Þorsteins Scheving Thorsteinssonar lyfsala árið 2007. Þetta var í þriðja sinn sem sjóðurinn veitti framhaldsnemum í lyfjafræði við Háskóla Íslands viðurkenningu fyrir framúrskarandi rannsóknir.

Rannsóknarverkefni Ögmundar Viðars fjallaði um efnasmíð og rannsóknir á katjónískum kítósykruafleiðum með bakteríuhamlandi eiginleika. Kítósykrur og afleiður þeirra hafa sýnt margs konar áhugaverða lyfjafræðilega eiginleika svo sem bakteríudrepandi eiginleika, genaferjunareiginleika og sáragræðandi eiginleika. Ögmundur Viðar Rúnarsson lauk BS-prófi í matvælafræði frá Háskóla Íslands árið 2002 og MS-prófi í lyfjavísindum frá lyfjafræðideild árið 2004. Hann hóf doktorsnám árið 2005 undir leiðsögn Más Mássonar prófessors.

Rannsóknaverkefni: Alkalóíðar úr íslenskum jafnategundum (Lycopodium), andkólínesterasaverkun in vitro

Jafnar eru lágplöntur sem framleiða áhugaverð efnasambönd sem sýnt hafa hindrandi verkun á asetýlkólínesterasa ensímið og gætu því reynst áhugaverð sem hugsanleg lyf við Alzheimerssjúkdómi. Meginmarkmið rannsóknarinnar er að rannsaka alkalóíðainnihald í íslenskum jafnategundum og kanna andkólínesterasavirkni þessara alkalóíða. Samspil virkra og óvirkra alkalóíða við ensímið verður kannað með hermun í tölvu og samband á milli efnabygginga og ensímhindrandi verkunar rannsakað.

Ögmundur Viðar Rúnarsson lauk BS-prófi í matvælafræði frá Háskóla Íslands árið 2002 og MS-prófi í lyfjavísindum frá Lyfjafræðideild árið 2004. Hann hóf doktorsnám árið 2005 undir leiðsögn Más Mássonar.

Rannsóknarverkefni Elsu Steinunnar gekk út á rannsóknir á byggingum alkaóíða úr íslenskum jafnategundum og verkun þeirra á ensímið acetýlkólínesterasa, en hindrun á virkni þess gefur vísbendingu um verkun gegn heilahrörnunarsjúkdómum á borð við Alzheimerssjúkdóminn. Elsa Steinunn Halldórsdóttir lauk kandídatsprófi frá Lyfjafræðideild Háskóla Íslands 2003 og hóf doktorsnám á sviði lyfja- og efnafræði náttúruefna við Lyfjafræðideild árið 2005 undir leiðsögn Elínar Soffíu Ólafsdóttur prófessors.

Rannsóknarverkefni: Efnasmíð á tvíleysnum efnum og rannsóknir á lyfjafræðilegum eiginleikum

Rannsóknarverkefnið fjallar um efnasmíð og rannsóknir á katjónískum kítósykruafleiðum með bakteríuhamlandi eiginleika. Kítósykrur og afleiður þeirra hafa sýnt margs konar áhugaverða lyfjafræðilega eiginleika svo sem bakteríudrepandi eiginleika, genaferjunareiginleika, sáragræðandi eiginleika og fleira. Lögð er áhersla á greiningu sambands byggingar og virkni þessara afleiða. Þar af leiðandi er einnig lögð áhersla á að þróa hentugar efnasmíðaaðferðir, sem síðan eru notaðar til að smíða röð af afleiðum þar sem byggingunni er breytt á skipulegan hátt.

Elsa Steinunn Halldórsdóttir lauk kandídatsprófi frá Lyfjafræðideild Háskóla Íslands 2003 og hóf doktorsnám á sviði lyfja- og efnafræði náttúruefna árið 2005 undir leiðsögn Elínar Soffíu Ólafsdóttur prófessors.

Verðlaunahafarnir hafa báðir birt vísindagreinar um rannsóknarverkefni sín og kynnt þau með erindum og veggspjöldum á vísindaráðstefnum hérlendis og erlendis.

Um sjóðinn

Bent Scheving Thorsteinsson stofnaði sjóðinn í maí árið 2001 til minningar um föður sinn Þorstein Scheving Thorsteinsson lyfsala í Reykjavíkurapóteki og eiginkonu hans Bergþóru Patursson. Sjóðnum er ætlað að styrkja vísindaleg afrek á sviði lyfjafræði, rannsóknir og framhaldsnám í faginu. Hefur sjóðurinn stutt við kraftmikla uppbyggingu doktorsnáms í lyfjafræði við Háskólann og gert nemendum kleift að kynna rannsóknir sínar erlendis og taka þátt í erlendu samstarfi í tengslum við doktorsnámið