Þrír nemendur í framhaldsnámi í tónlist hafa fengið styrk úr Ingjaldssjóði við Háskóla Íslands. Þetta er í áttunda sinn sem úthlutað er úr sjóðnum. Heildarupphæð styrkja er kr. 2.700.000.
Ingjaldssjóður var stofnaður 17. nóvember 2015 til minningar um dr. Ingjald Hannibalsson, prófessor við Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands. Ingjaldur starfaði lengst af við Háskóla Íslands og arfleiddi hann skólann að öllum eigum sínum. Stofnfé sjóðsins nam rúmlega sjötíu milljónum króna og frá stofnun hafa jafnframt borist gjafir í sjóðinn. Samtals hafa 25 framhaldsnemar notið stuðnings sjóðsins frá upphafi og heildarupphæð styrkja numið tæpum 20 milljónum króna.
Samkvæmt fyrirmælum sem sett voru fram í erfðaskrá Ingjalds skal sjóðurinn styrkja efnilega íslenska námsmenn við Háskóla Íslands til framhaldsnáms erlendis í rekstrarstjórnun og alþjóðlegum viðskiptum eða nemendur í tónlist. Stjórn sjóðsins skipa Karólína Eiríksdóttir, Þórður Sverrisson og Runólfur Smári Steinþórsson, sem er formaður sjóðsins.
Styrkhafar árið 2026:
Hafrún Birna Björnsdóttir víóluleikari stundar meistaranám við Síbelíusarakademíuna undir handleiðslu Atte Kilpeläinen og Helge Valtonen. Hún lauk framhaldsprófi á fiðlu frá MÍT og B.Mus. í víóluleik frá Listaháskóla Íslands vorið 2024 undir handleiðslu Þórunnar Óskar Marinósdóttur en þriðja árið stundaði hún skiptinám við Síbelíusarakademíuna. Hafrún hefur leikið með Fílharmóníuhljómsveit Helsinki, NYKY Ensemble, Sinfóníuhljómsveit Íslands, Íslensku Óperunni og hlaut starfsnámsstöðu hjá Fílharmóníuhljómsveit Helsinki haustið 2025. Hafrún hyggur á útgáfu plötu í vor undir listamannsnafninu SPÍRA með spunaverkum fyrir víólu og looper-pedal sem hún vann að í Listhópum Hins hússins sumarið 2024. Hún hefur tekið þátt í fjölbreyttum samstarfsverkefnum, meðal annars með góðgerðarsamtökunum Hyvin Voimin Ry, við að færa klassíska tónlist til hópa sem hafa takmarkað aðgengi að henni. Hafrún er einnig stofnmeðlimur norsk-íslenska hópsins Stundaróms sem vinnur með tónlistarf þjóðanna og stóð nýverið fyrir barnatónleikum á Íslandi og í Noregi. Auk þess hefur hún komið fram á hátíðum á borð við Seiglu og Óperudaga og tekið þátt í fjölda upptöku- og tónlistarverkefna.
Hjörtur Páll Eggertsson er ungur hljómsveitarstjóri og sellóleikari búsettur í Danmörku. Árið 2022 lauk hann meistaragráðu í sellóleik við Konunglega tónlistarháskólann í Kaupmannahöfn. Hann hefur komið fram sem sellóleikari á ýmsum tónlistarhátíðum í Evrópu og leikið einleik meðal annars með Sinfóníuhljómsveit Íslands. Hjörtur hóf stjórnendanám sitt við Malko-hljómsveitarstjóraademíuna, þar sem hann útskrifaðist árið 2022. Hann hefur tekið þátt í masterklössum hjá Herbert Blomstedt, Johannes Schlaefli, Nicolás Pasquet og Fabio Luisi. Frá 2023-2025 stundaði hann nám í hljómsveitarstjórn hjá Ed Spanjaard við Conservatorium van Amsterdam. Haustið 2025 hóf hann framhaldsnám í hljómsveitarstjórn við Konunglega tónlistarháskólann í Kaupmannahöfn undir handleiðslu Giordanos Bellincampi. Auk þess var hann á árunum 2024-2025 þátttakandi í Dirigentløftet Danmark og Nordisk Dirigentforum, þróunarverkefni ætluðu efnilegustu stjórnendum á Norðurlöndum. Undanfarin misseri hefur hann unnið með Sinfóníuhljómsveit Íslands, Kammersveit Reykjavíkur og Elju Kammersveit. Hann hefur einnig unnið reglulega sem aðstoðarstjórnandi Evu Ollikainen, meðal annars á tónleikum hennar með Sinfóníuhljómsveit BBC á BBC Proms.
Ólína Ákadóttir er ungur og efnilegur píanóleikari. Hún lauk bakkalárnámi við Tónlistarháskóla Noregs með eins árs skiptinámi í Tbilisi í Georgíu. Nú stundar hún meistaranám við Konunglega tónlistarháskólann í Kaupmannahöfn. Ólína hefur komið fram sem einleikari með Sinfóníuhljómsveit Íslands, Sinfóníuhljómsveit unga fólksins og fleirum. Hún hefur jafnframt komið fram á ýmsum tónlistarhátíðum eins og Seiglu, Óperudögum, Asker Kammerkonserter, Sumartónleikaröð Bláu kirkjunnar og Sumartónleikaröð Listasafns Sigurjóns Ólafssonar. Einnig hefur Ólína staðið fyrir ýmsum sjálfstæðum verkefnum. Hún hefur sett saman söngleik við verk Jórunnar Viðar og haldið einleikstónleikana Ferðasögur frá Georgíu, barnasýningar, tónlistarsmiðjur og stofutónleikaröð.
Um sjóðinn
Ingjaldssjóður, minningarsjóður Ingjalds Hannibalssonar prófessors, er í umsjá og vörslu Styrktarsjóða Háskóla Íslands og fellur undir sjóði sem lúta yfirstjórn Háskóla Íslands. Styrktarsjóðir Háskóla Íslands hafa umsjón með sjóðum og gjöfum sem Háskóla Íslands hafa verið ánafnaðar allt frá stofnun hans. Flestir sjóðanna starfa samkvæmt staðfestri skipulagsskrá og er þeim ætlað að styðja ýmis verkefni á ákveðnum fræðasviðum til ávinnings fyrir starf Háskóla Íslands með styrkjum til stúdenta og starfsfólks.