Söngsvunta, málörvunarpoki, verkfærakassi til inngildingar, verkefnabók í íslensku og fjölskylduborðspil sem brúar bilið á milli pólsku og íslensku er meðal þess sem unnið er að í fjórum verkefnum sem öll hafa það að markmiðið efla íslenskukunnáttu barna af erlendum uppruna og hlotið hafa styrk úr Íslenskusjóðnum við Háskóla Íslands. Þetta er í fimmta sinn sem úthlutað er úr sjóðnum og heildarupphæð styrkja nemur fjórum milljónum króna.
Markmið Íslenskusjóðsins er að veita styrki til að efla vald á íslensku máli meðal barna og fullorðinna, einkum fjöltyngdra barna af erlendum uppruna og foreldra þeirra. Sjóðurinn styrkir þróunarverkefni á leik- og grunnskólastigi, námskeið, bókaútgáfu, t.d. fjölmálabóka, vefsíður, efni fyrir snjalltæki og annað sem álitlegt þykir til að ná markmiði sjóðsins.
Birna Arnbjörnsdóttir, prófessor emerita í annarsmálsfræðum við Mála- og menningardeild HÍ, Halldóra Jóhanna Þorláksdóttir, rannsóknamaður við Málvísindastofnun HÍ, og Þorgerður Anna Björnsdóttir, verkefnastjóri við Konfúsíusarstofnunina Norðurljós við HÍ, hlutu styrk til að standa straum af kostnaði við handritagerð og grafíska hönnun fimmtu bókarinnar í bókaröðinni Vinir Ara. Um er að ræða verkefnabækur í íslensku sem eru sjálfstætt ítarefni við kennsluvefinn Icelandic Online – Börn. Bækurnar eru ætlaðar 5-7 ára nemendum, á síðasta ári leikskóla og í 1.-2. bekk grunnskóla, sem stuðningur við nám í íslensku sem öðru máli og íslensku með áherslu á lestrar- og skriftarþjálfun og námsorðaforða. Með bókunum fá börn tækifæri til að fást við þær hliðar lestrar- og skriftarnáms sem ekki er hægt að þjóna í vefumhverfinu, einkum að draga til stafs og þjálfa skrift með hefðbundnum hætti. Með bókunum og kennsluvefnum er þannig skapað heildstætt námsefni þar sem bækur og kennsluvefur vinna saman.
Fatou N’dure Baboudóttir og Tinna Björk Helgadóttir, verkefnastjórar Frístundalæsis, hafa hlotið styrk til verkefnisins „Samfélagslæsiskassi fyrir frístundaheimili“. Markmið verkefnisins er að efla samfélagslæsi, orðaforða og skilning barna á menningarlegri fjölbreytni með leik og reynslunám í forgrunni. Verkefnið felur í sér þróun hagnýts verkfærakassa fyrir frístundaheimili sem styður við inngildingu og virka þátttöku barna með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn. Í kassanum verða veggspjöld sem útskýra samfélagslæsi, stafróf á algengustu móðurmálum barna á Íslandi og þjóðfánar sem tengjast þeim tungumálum ásamt bingóspili og fjölmenningarlegri uppskriftabók. Með því að vinna með tungumál og menningu í gegnum leik og samvinnu er leitast við að skapa aðgengilegt og jákvætt námsumhverfi. Þannig fá börn tækifæri til að kynnast fjölbreytileika samfélagsins og þróa samskiptahæfni sína á íslensku. Efnið verður hannað í samstarfi við sérfræðinga í fjöltyngi og frístundastarfi og verður dreift til frístundaheimila um allt land. Jafnframt verður það gert aðgengilegt á vef Frístundalæsis til útprentunar. Verkefnið byggist á grunni Frístundalæsis og er unnið í samstarfi við skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar og Miðstöð menntunar og skólaþjónustu.
Katrín Hólm Árnadóttir, leikskólastjóri Mánalandi, hlaut styrk fyrir verkefnið „Ævintýri í hverju spori: málörvun frá morgni til kvölds“. Verkefnið er unnið á vegum leikskólans Mánalands í Vík í Mýrdal og miðar að því að efla íslenskukunnáttu fjöltyngdra barna og foreldra þeirra. Þar sem um 80% barnahópsins eru af erlendum uppruna er lögð rík áhersla á að nýta raunaðstæður daglegs starfs til markvissrar málörvunar. Byggt er á námsefninu Orð eru ævintýri og sjónrænum stuðningi fléttað inn í allar rútínur leikskólans, allt frá fataherbergi til matborðs. Helstu nýjungar verkefnisins eru notkun sögusvunta, sem gera sögustundir lifandi og áþreifanlegar, og sérstakra málörvunarpoka fyrir heimilin. Í pokunum eru bækur og QR-kóðar sem vísa á hljóðupptökur þar sem starfsfólk leikskólans les sögurnar. Þannig fá foreldrar mikilvægan stuðning við framburð og geta tekið virkan þátt í málþroska barna sinna á heimavelli. Markmiðið er að brúa bilið milli skóla og heimilis, lækka tungumálaþröskuldinn og gera íslenskunám að náttúrulegum og ævintýralegum hluta af hversdegi barnanna.
Katarzyna Þóra Matysek, brúarmiður og kennari, hlaut styrk fyrir verkefnið „Orðabrú/ Brú milli heima – tvítyngt fjölskylduborðspil fyrir pólsk-íslensk heimili“. Markmið verkefnisins er að efla íslenskan orðaforða, menningarlæsi og tvítyngda sjálfsmynd barna með leik og gæðasamveru í forgrunni. Meginmarkmiðið er að gera íslensku að velkomnum og lifandi hluta af fjölskyldulífinu, draga úr óþarfa skjátíma og styrkja málþroska barna og foreldra samtímis. Verkefnið er hagnýtt þróunarverkefni sem felst í hönnun borðspils sem brúar bilið á milli pólsku og íslensku og hvetur fjölskyldur til að læra saman heima fyrir. Borðspilið samanstendur af myndrænu leikborði þar sem menningartákn beggja landa mætast og eru verkefni sem hvetja alla til tals og leiks. Sérstök áhersla er lögð á að barnið taki að sér hlutverk leiðbeinanda, jafnvel kennara, fyrir foreldra sína í íslensku . Þetta styrkir sjálfsmynd og sjálfstraust barnsins og gerir íslenskuna að eðlilegum hluta af málumhverfi heimilisins. Fyrir foreldra, sem oft eiga erfitt með að sækja hefðbundin tungumálanámskeið býður spilið upp á dýrmætt tækifæri til að læra íslensku með börnum sínum í gegnum leik og gleði. Með því að tengja tungumálin saman á þennan hátt er leitast við að ná til pólskra fjölskyldna á Íslandi og stuðla að farsælli inngildingu þeirra í íslenskt samfélag.
Um sjóðinn
Íslenskusjóðinn stofnuðu Elsa Sigríður Jónsdóttir og Tómas Gunnarsson til minningar um foreldra þeirra, þau Sigríði S. Sigurðardóttur og Jón Sigurðsson og Björgu Tómasdóttur og Gunnar Guðmundsson.
Sjóðurinn starfar samkvæmt staðfestri skipulagsskrá og í stjórn sjóðsins sitja Sara Margrét Ólafsdóttir, dósent á Menntavísindasviði, formaður, Renata Emilsson Pesková, dósent á Menntavísindasviði og Gísli Hvanndal Ólafsson, fyrrverandi verkefnisstjóri á Hugvísindasviði.
Styrktarsjóðir Háskóla Íslands hafa umsjón með sjóðum og gjöfum sem Háskóla Íslands hafa verið ánafnaðar allt frá stofnun hans. Flestir þeirra starfa samkvæmt staðfestri skipulagsskrá og er þeim ætlað að styðja ýmis verkefni á ákveðnum fræðasviðum til hagsældar fyrir Háskóla Íslands, stúdenta eða starfsfólk.