Menntasjóður Hugvísindasviðs auglýsir eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum en hann styður doktorsnema á lokastigum náms við deildir sviðsins. Doktorsnemar á Hugvísindasviði geta sótt um en skilyrði fyrir styrk er að hafa ávallt skilað framvinduskýrslu og að eiga ekki rétt á greiðslum úr öðrum rannsóknasjóðum eftir 1. september 2026.
Umsóknarfrestur er til 20. apríl 2026.
Heildarfjárhæð styrkja er 2,1 milljón króna, sem skiptist á þrjú verkefni og fær hvert verkefni 700.000 krónur.
Í umsókn um styrk þurfa eftirtalin atriði að koma fram:
- Nafn umsækjanda, kennitala, heimilisfang, sími og virkt netfang.
- Helstu atriði úr náms- og starfsferli og ritaskrá umsækjanda.
- Heiti rannsóknarverkefnisins og nafn leiðbeinanda.
- Hnitmiðuð lýsing á verkefninu á íslensku, að hámarki 150 orð, sem verður nýtt til almennrar umfjöllunar og kynningar, hljóti verkefnið styrk.
- •Veigameiri lýsing á rannsóknarverkefni á íslensku EÐA ensku, að hámarki 800 orð. Þar er gerð grein fyrir fræðilegum forsendum verksins, aðferðafræði, helstu niðurstöðum og vísindalegu gildi þess. Fram komi hvort doktorsritgerðin er eitt heildstætt og samfellt verk eða safn greina.
- Tímaáætlun verkefnisins frá dagsetningu umsóknar í Menntasjóð til lokaskila til deildar þar sem skýrt komi fram hvaða verkþáttum er ólokið. Miðað er við að doktorsritgerð verði skilað innan sex mánaða frá því að styrkur er veittur eða fyrir árslok 2026.
- Rökstuðningur fyrir því hvernig styrkurinn muni nýtast umsækjanda við að ljúka ritgerðinni.
- Umsækjandi geri grein fyrir þeim styrkjum sem hann hefur hlotið á námstímanum. Sérstök áhersla er lögð á að ekki verður veittur styrkur ef umsækjandi þiggur greiðslur úr öðrum rannsóknarsjóði samtímis, en ef umsækjandi er með styrk þar sem greiðslum lýkur að fullu 1. september eða fyrr telst umsóknin styrkhæf.
- Staðfesting frá leiðbeinanda og fulltrúum í doktorsnefnd á því að nefndin telji doktorsnema geta lagt ritgerð fram til deildar innan sex mánaða frá því að styrkur er veittur, þ.e. fyrir árslok 2026. Sniðmát að bréfi er að finna hér.
Áhersla er lögð á vandaða og raunsæja tímaáætlun, þar sem umsækjandi gerir grein fyrir því hvernig hann muni geta náð að skila ritgerð sinni fyrir árslok, ef hann skyldi hljóta styrk.
Farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál. Stjórn sjóðsins áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum og/eða úthluta styrkjum með öðrum hætti.
Áætlað er að úthlutun og afhending styrksins fari fram í maí eða júní 2026.
Fyrirkomulag greiðslna:
Umsækjendur sem hljóta styrk úr sjóðnum fá 500.000 krónur greiddar við afhendingu styrksins og eftirstandandi 200.000 krónur eftir að andmælendur hafa metið ritgerðina tæka til varnar. Nemendur eru beðnir um að hafa samband við umsjónarmann doktorsnáms til að fá lokagreiðsluna greidda.
Umsóknum skal skila sem viðhengi á netfang Rominu Werth, umsjónarmann doktorsnáms á Hugvísindasviði: rw@hi.is
Frekari upplýsingar er að finna á vefsíðu sjóðsins á sjóðavef Háskóla Íslands. Einnig má hafa samband við umsjónarmann doktorsnáms Hugvísindasviðs, Rominu Werth, rw@hi.is.
Um sjóðinn:
Sjóðurinn var stofnaður við Háskóla Íslands 2018 og er safn sjóða sem tengjast fræðigreinum sem tengjast Hugvísindasviði og eru sameinaðir til þess að styðja við doktorsnám á Hugvísindasviði. Sjóðirnir eru: Det Danske Selskabs Studenterlegat (1943), Forlagsboghandler, Dr. Phil. h.c. Ejnar Munkgaards Stiftelse til Fordel for Det filosofiske Fakultet ved Islands Universitet i Reykjavik (1938), Minningarsjóður dr. Rögnvalds Péturssonar (1960), Minningarsjóður norskra stúdenta (1948), Norðmannsgjöf (1961) og Sögusjóður stúdenta (1930).