""

Margrét Helga Ögmundsdóttir, prófessor við Háskóla Íslands og framkvæmdastjóri Ternaria Biosciences, hlýtur viðurkenningu Nýsköpunarsjóðs dr. Þorsteins Inga Sigfússonar við Háskóla Íslands árið 2026. Margrét Helga hlýtur viðurkenninguna fyrir frumkvöðlastarf á sviði rannsókna og nýsköpunar í framþróun mRNA-lyfja. Margrét Helga tók við viðurkenningunni úr hendi Silju Báru R. Ómarsdóttur, rektors Háskóla Íslands, við hátíðlega athöfn 3. júní síðastliðinn. 

Þetta er í sjötta sinn sem viðurkenning er veitt úr sjóðnum en tilgangur hans er að vekja athygli á nýsköpun og styrkja efnilega frumkvöðla, nemendur eða vísindamenn sem sinna verkefnum eða rannsóknum er lúta að nýsköpun. 

Margrét Helga Ögmundsdóttir nam lífefnafræði við Háskóla Íslands og lauk doktorsnámi við Oxford-háskóla árið 2010 þar sem hún rannsakaði efnaskipti krabbameina. Margrét Helga hefur unnið að rannsóknum og kennslu við Háskóla Íslands frá 2011 og snúa rannsóknir hennar einkum að sameindalíffræði krabbameina. Hún hefur skoðað tengsl niðurbrots stórsameinda í frumum við myndun og framþróun krabbameina.

Undanfarin ár hefur Margrét Helga unnið að rannsóknum á sviði mRNA-lyfja og nýsköpun í líftæknifyrirtækinu Ternaria Biosciences. Fyrirtækið á uppruna sinn í frjóum huga okkar færasta vísindafólks í kjölfar þeirrar byltingar í mRNA-bóluefnum sem varð í miðjum COVID-heimsfaraldrinum.  Sú nýsköpun í gerð bóluefna var árangur samstillts átaks og samvinnu vísindafólks og fyrirtækja um allan heim. Lyfjaþróun þar sem mRNA-sameindir gegna lykilhlutverki hafa þróast hratt æ síðan. Fyrirhugað notkunarsvið þeirra nær í dag til fjölda sjúkdóma: krabbameina, erfðasjúkdóma, sjálfsofnæmis, hjartasjúkdóma, frumu- og vefjasjúkdóma auk erfðalækninga og bólusetningar við smitsjúkdómum.

Ternaria-teymið eygði tækifæri til að þróa betri aðferðir við hönnun, framleiðslu og hreinsun slíkra mRNA-sameinda. Djúp þekking í sameindalíffræði og lífefnafræði, færni og árangursríkt samstarf lagði grunninn að góðu teymi og fljótlega hófst undirbúningur að stofnun sprotafyrirtækis. Með virku samtali og stuðningi nýsköpunarumhverfisins og Tækniþróunarsjóðs stofnuðu Margrét Helga og félagar hennar Eiríkur Steingrímsson og Steingrímur Stefánsson fyrirtækið ARTerna árið 2021.  Fyrirtækið breytti síðar nafninu í Ternaria Biosciences með vísan í vorboðann þrautseiga, kríuna, sem ferðast um hálfan hnöttinn til Íslands.

Fyrirtækið hefur náð eftirtektarverðum árangri í að bæta gæði mRNA-framleiðslu, bæði með hönnun nýrra ensíma með aðstoð gervigreindar og með próteinhreinsun. Með betri gæðum mRNA-afurða má tryggja betri lyf fyrir framtíðina. Hugvit og tækni Ternaria Biosciences kann að gegna stóru hlutverki þar.  

Ternaria hefur styrkt teymið og fengið veglega styrki og fjárfestingu til að standa undir áframhaldandi þróun. Meðal annars hefur Margrét Helga hlotið Evrópustyrk frá Women TechEU, sem er mikil viðurkenning.  

Stjórn Nýsköpunarsjóðs dr. Þorsteins Inga Sigfússonar fagnar þekkingu og áræði Margrétar Helgu og félaga hennar og hlakkar til að fylgjast með þróun Ternaria Biosciences og starfsemi þess í framtíðinni.

Um sjóðinn

Nýsköpunarsjóður dr. Þorsteins Inga Sigfússonar var stofnaður 4. júní 2020 til minningar um dr. Þorstein Inga Sigfússon (f. 4. júní 1954, d. 15. júlí 2019). Stofnandi sjóðsins er Bergþóra K. Ketilsdóttir, ekkja Þorsteins Inga.

Þorsteinn Ingi lauk doktorsnámi í eðlisfræði frá Cambridge-háskóla í Englandi árið 1983. Hann hóf störf sem fræðimaður við Raunvísindastofnun Háskóla Íslands árið 1982 og síðar sem prófessor í eðlisfræði við Háskólann. Þorsteinn Ingi vann ötullega að tengingu háskóla og atvinnulífs og kom að stofnun og stjórnarmennsku í sprotafyrirtækjum á mörgum sviðum. Hann var frumkvöðull á sviði orkurannsókna á Íslandi og beitti sér ötullega í baráttunni við að draga úr losun koltvíoxíðs í andrúmslofti. Þorsteinn Ingi varð forstjóri Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands við stofnun hennar 2007. Hann var sæmdur riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu fyrir vísindastörf og framlag til hátækniatvinnugreina og hlaut rússnesku Alheimsorkuverðlaunin árið 2007 fyrir framlag sitt til vetnismála.

Stjórn sjóðsins skipa dr. Guðrún Pétursdóttir, prófessor emerita við Háskóla Íslands, sem er formaður stjórnar, Hermann Kristjánsson, verkfræðingur og frumkvöðull, og dr. Þór Sigfússon hagfræðingur. Viðurkenning sjóðsins er veitt árlega á afmælisdegi Þorsteins Inga.

Hægt er að styrkja sjóðinn með peningagjöfum. Fjárhæðir má leggja inn á eftirfarandi bankareikning hjá Íslandsbanka: 596-26-1760. Kennitala Styrktarsjóða Háskóla Íslands er 571292-3199. Mikilvægt er að merkja greiðsluna nafni sjóðsins. Netfang Styrktarsjóða Háskóla Íslands er sjodir@hi.is.

Styrktarsjóðir Háskóla Íslands  hafa umsjón með sjóðum og gjöfum sem Háskóla Íslands hafa verið ánafnaðar allt frá stofnun hans. Flestir þeirra starfa samkvæmt staðfestri skipulagsskrá og er þeim ætlað að styðja ýmis verkefni á ákveðnum fræðasviðum til hagsældar fyrir Háskóla Íslands, stúdenta eða starfsfólk.  

""
Margrét Helga Ögmundsdóttir, prófessor við Háskóla Íslands og framkvæmdastjóri Ternaria Biosciences, hlýtur viðurkenningu Nýsköpunarsjóðs dr. Þorsteins Inga Sigfússonar við Háskóla Íslands árið 2026. MYND/Kristinn Ingvarsson