""

Doktorsverkefni þriggja nemenda á Menntavísindasviði HÍ, sem miða að því að draga úr matvendni leikskólabarna, efla lesskilning unglinga með ritunarkennslu og nýta fullorðinsfræðslu til að efla samfélagsþátttöku erlends leikskólastarfsfólks, hafa hlotið styrk úr Styrktar- og rannsóknarsjóði Þuríðar J. Kristjánsdóttur. Styrkirnir voru afhentir á Menntavísindasviði HÍ, Sögu.  

Styrkhafar eru Berglind Lilja Guðlaugsdóttir, Jennifer Nichol Thompson og Nichole Leigh Mosty. Við mat á umsóknum voru markmið sjóðsins höfð til viðmiðunar, að styrkja doktorsnema á Menntavísindasviði, einkum vegna verkefna á sviði kennslumála. Verkefnin voru metin út frá markmiðum, fræðilegu nýmæli, hagnýtu gildi, tímaplani og kostnaðaráætlun. Heildarstyrkupphæð styrkja er 2.000.000 kr.

Berglind Lilja Guðlaugsdóttir hlýtur styrk fyrir verkefnið „Litlu laukar – Bragðlaukaþjálfun: Fæðumiðuð íhlutun í leikskólum með þátttöku kennara og foreldra ásamt langtímaeftirfylgd á vaxtarferlum“. Verkefnið Litlu laukar – Bragðlaukaþjálfun er samofin daglegu skólastarfi og byggist á leik, skynrænum æfingum og einfaldri matargerð til að styðja fjölbreyttara fæðuval og draga úr matvendni hjá ungum börnum. Íhlutunin var hönnuð með leikskólafólki til að tryggja að hægt væri að beita henni í skólastarfi og lágmarka álag þar. 

Jennifer Nichol Thompson hlýtur styrk fyrir verkefnið „Developing students' language and literacy through writing instruction“. Sterk lestrarfærni leggur grunn að árangursríkri ritun þar sem hún eykur orðaforða, lesskilning og hæfni til að greina og túlka texta. Þótt mikilvægt sé að leggja áherslu á lesfimi og aðferðir til að efla lesskilning felast einnig tækifæri í ritunarkennslu til að styrkja skilning og gagnrýna hugsun. Með því að styðja við þróun ritunar hjá unglingum styrkist ekki aðeins gagnrýnin hugsun þeirra heldur batnar einnig lesfimi og lesskilningur verulega. Þannig myndast jákvætt samspil sem eykur læsi og bætir námsárangur í heild. Í þessu tveggja ára verkefni munu fimm kennarar fá þjálfun í að leiðbeina nemendum í gegnum ritunarferli mismunandi textategunda. 

Nichole Leigh Mosty hlýtur styrk fyrir verkefnið „From Deficit to Asset: Transforming Early Childhood Education and Care through Migrant Capital and Adult Education in Iceland“. Markmið rannsóknarinnar er að greina hvernig fullorðinsfræðsla getur styrkt inngildingu og samfélagsþátttöku innflytjenda sem starfa í leikskólum á Íslandi. Sérstök áhersla er lögð á að skoða hvernig fullorðinsfræðslukerfið getur brugðist við skorti á menntuðum leikskólakennurum, fjölgun erlends starfsfólks og auknum kröfum um inngildandi leikskólastarf. 

Um sjóðinn
Styrktar- og rannsóknasjóður Þuríðar J. Kristjánsdóttur var stofnaður undir hatti Styrktarsjóða Háskóla Íslands árið 2019. Stofnframlag sjóðsins er gjöf Þuríðar Jóhönnu Kristjánsdóttur, fyrrverandi prófessors og aðstoðarrektors Kennaraháskóla Íslands, sem lést árið 2018. Í erfðaskrá sinni arfleiddi hún Háskóla Íslands að húseign sinni og öðrum eigum með það að markmiði að stofna styrktarsjóð. 

Styrktarsjóðir Háskóla Íslands hafa umsjón með sjóðum og gjöfum sem ánafnaðar hafa verið Háskóla Íslands allt frá stofnun hans. Flestir þeirra starfa samkvæmt staðfestri skipulagsskrá og er þeim ætlað að styðja við ýmis verkefni á ákveðnum fræðasviðum til hagsældar fyrir Háskóla Íslands, stúdenta og starfsfólk. Sjóðirnir eru mikil lyftistöng fyrir háskólann, sem hefur notið mikils velvilja af hálfu fjölmargra einstaklinga í gegnum tíðina en þeir hafa af miklum rausnarskap lagt fé í styrktarsjóði sem allir miða að því að efla vísindarannsóknir og afla nýrrar þekkingar, samfélaginu til heilla.

""
Styrkþegarnir þrír, Jennifer Nichol Thompson, Berglind Lilja Guðlaugsdóttir og Nichole Leigh Mosty. MYND/Kristinn Ingvarsson