Veittir hafa verið fjórir styrkir úr Styrktarsjóði Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur árið 2026, að upphæð rúmlega 3,9 milljónir króna. Stjórn sjóðsins samþykkti einróma á fundi sínum, sem haldinn var þann 6. mars 2026, að styrkja útgáfu stofnunarinnar með eftirfarandi hætti:
Ritnefnd SVF- Milli mála 2026-1 og Milli mála 2026-2
kr. 2.200.000
Molière á Íslandi: Aurasálin og Ímyndunarveikin
kr. 600.000
Sætabrauðshúsið og fleiri furðusögur frá Rómönsku Ameríku
kr. 600.000
Albert Camus - Útlendingurinn
kr. 500.000
Stjórn sjóðsins skipa þau Steinþór Pálsson, sem er formaður stjórnar, Birna Arnbjörnsdóttir, prófessor emerita, og Berglind Ásgeirsdóttir. Varamaður í stjórn er Pétur Knútsson.
Styrktarsjóður Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur var stofnaður árið 2003. Hlutverk hans er að renna styrkum stoðum undir starfsemi Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur og stuðla að vexti og viðgangi stofnunarinnar.
Hægt er að styrkja sjóðinn með ýmsu móti. Fjárhæðir má leggja inn á eftirfarandi bankareikning hjá Íslandsbanka: 0596-26-1760. Kennitala Styrktarsjóða HÍ er 571292-3199. Mikilvægt er að merkja greiðsluna nafni sjóðsins.
Styrktarsjóðir Háskóla Íslands hafa umsjón með sjóðum og gjöfum sem ánafnaðar hafa verið Háskóla Íslands allt frá stofnun hans. Flestir þeirra starfa samkvæmt staðfestri skipulagsskrá og er þeim ætlað að styðja við ýmis verkefni á ákveðnum fræðasviðum til hagsældar fyrir Háskóla Íslands, stúdenta og starfsfólk. Sjóðirnir eru mikil lyftistöng fyrir háskólann, sem hefur notið mikils velvilja af hálfu fjölmargra einstaklinga í gegnum tíðina en þeir hafa af miklum rausnarskap lagt fé í styrktarsjóði sem allir miða að því að efla vísindarannsóknir og afla nýrrar þekkingar, samfélaginu til heilla.