Frá afhendingu styrkjanna á rektorsskrifstofu en þar komu saman foreldrar styrkhafa, rektor og stjórn Verðlauansjóðs Sigurðar Helgasonar. MYND/Tryggvi Már Gunnarsson

Alexander K. Bendtsen og Benedikt Vilji Magnússon, nemendur á þriðja ári í stærðfræði við Raunvísindadeild Háskóla Íslands, hafa hlotið viðurkenningu úr Verðlaunasjóði Sigurðar Helgasonar prófessors fyrir frábæran námsárangur. Heildarupphæð verðlaunanna nemur 12.500 bandaríkjadölum, jafnvirði rúmlega 1,5 milljónum króna.

Alexander K. Bendtsen útskrifaðist með stúdentspróf úr Verzlunarskóla Íslands árið 2023 og innritaðist strax í stærðfræði við HÍ eftir það. Meðfram námi hefur Alexander kennt bæði við Verzlunarskóla Íslands og Háskóla Íslands og þá fékk hann tækifæri til að prófa að kenna í grunnskóla í vettvangsnámi í Hagaskóla. Alexander stefnir á að útskrifast með BS-próf í stærðfræði næsta vor og hyggur í framtíðinni á nám í tryggingastærðfræði í Kaupmannahafnarháskóla. Þetta misseri er Alexander í skiptinámi í Groeningen í Hollandi.

Benedikt Vilji Magnússon lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík 2023. Hann tók þátt í stærðfræði-, eðlisfræði- og forritunarkeppnum framhaldsskólanna með frábærum árangri og hefur eftir að hann hóf háskólanám tekið þátt í þjálfun nemenda fyrir þátttöku í alþjóðlegum stærðfræðikeppnum og undirbúningi landskeppni Íslands í greininni. Síðasta sumar vann hann sem aðstoðarmaður við rannsóknir á Raunvísindastofnun Háskólans og er grein um rannsóknaverkefnið í birtingarferli. Eftir útskrift frá HÍ næsta vor stefnir Benedikt Vilji á framhaldsnám erlendis. Benedikt Vilji er sem stendur í skiptinámi í Berkeley-háskóla í Kaliforníu.

Þar sem styrkhafar voru báðir erlendis í skiptinámi og tóku Búi Bendtsen, faðir Alexanders, og Magnús Þór Torfason og Guðrún Mjöll Sigurðardóttir, foreldrar Benedikts Vilja, við styrkjunum fyrir þeirra hönd.

Um sjóðinn
Verðlaunasjóður Sigurðar Helgasonar prófessors veitir viðurkenningar til stærðfræðinema og nýútskrifaðra stærðfræðinga fyrir góðan námsárangur og styrkir þá til frekari afreka í námi og rannsóknum.

Stofnandi sjóðsins er Sigurður Helgason. Hann var prófessor í stærðfræði við Tækniháskóla Massachusetts (MIT) í Boston. Sigurður fæddist á Akureyri 30. september 1927 og lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Akureyri 1945. Eftir árs nám við verkfræðideild Háskóla Íslands hélt Sigurður til Danmerkur og lauk Mag.Scient.-prófi í stærðfræði 1952 frá Kaupmannahafnarháskóla. Hann hélt þá til frekara náms við Princeton-háskóla í Bandaríkjunum og lauk þaðan doktorsprófi 1954 og kenndi síðan við MIT, Princeton-háskóla, Chicago-háskóla og Columbia-háskóla. Sigurður varð prófessor við MIT árið 1965 og eftir hann liggja fjölmargar bækur og vísindagreinar um stærðfræði. Hann var heiðursdoktor við Háskóla Íslands frá árinu 1986 og einnig heiðursfélagi Íslenska stærðfræðafélagsins. Sigurður lést árið 2023.

Styrktarsjóðir á borð við Verðlaunasjóð Sigurðar Helgasonar eru mikil lyftistöng fyrir Háskóla Íslands.

Skólinn hefur notið mikils velvilja af hálfu fjölmargra einstaklinga á undanförnum árum en þeir hafa af miklum rausnarskap lagt fé í styrktarsjóði sem allir miða að því að hvetja nemendur skólans til dáða, efla vísindarannsóknir og afla nýrrar þekkingar, samfélaginu til heilla.

Frá afhendingu styrkjanna á rektorsskrifstofu en þar komu saman foreldrar styrkhafa, rektor og stjórn Verðlauansjóðs Sigurðar Helgasonar. MYND/Tryggvi Már Gunnarsson
Frá afhendingu styrkjanna á rektorsskrifstofu en þar komu saman foreldrar styrkhafa, rektor og stjórn Verðlauansjóðs Sigurðar Helgasonar. MYND/Tryggvi Már Gunnarsson