Kristín Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands, tók í dag á móti einstökum velunnurum Háskóla Íslands, þeim hjónum Margaret og Bent Scheving Thorsteinsson. Bent Scheving Thorsteinsson hefur verið velgjörðarmaður Háskóla Íslands frá síðustu aldamótum.
Íslenska stærðfræðafélagið hefur hlotið styrk úr Almanakssjóði til að vinna að endurútgáfu og prentun á Orðaskrá Íslenska stærðfræðafélagsins að upphæð kr. 500.000.
Í dag hlaut Auður Hauksdóttir, dósent í dönsku við Háskóla Íslands, styrk upp á 70 þúsund danskar krónur sem samsvara tæplega 1,7 milljónum íslenskra króna úr sjóði Selmu og Kays Langvads.
Bergljót Kristjánsdóttir, prófessor í íslenskum bókmenntum, hefur hlotið styrk að upphæð kr. 385.000 til að heimasækja Manitoba-háskóla ásamt tveimur MA-nemendum, þeim Ástu Kristínu Benediktsdóttur og Sigrúnu Margréti Guðmundsdóttur.
Fyrsti stjórnarfundur Watanabe-styrktarsjóðsins við Háskóla Íslands var haldinn í dag. Tilgangur sjóðsins er að veita styrki til skiptináms í Japan og á Íslandi, bæði til nemenda í grunn- og framhaldsnámi, auk þess að stuðla að kennaraskiptum.
Toshizo Watanabe og Kristín Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands, undirrituðu á haustdögum stofnskrá nýs styrktarsjóðs við Háskólann.
Þann 25. janúar sl. afhenti Jón Sigvaldason Rannsóknasjóði Ingibjargar R. Magnúsdóttur gjafabréf að upphæð 100 þúsund krónur. Gjöfin er til minningar um eigikonu hans, Mary Alberty Sigurjónsdóttur heilsuverndarhjúkrunarkonu.
Úthlutað var úr Minningarsjóði Þorvalds Finnbogasonar stúdents við hátíðlega athöfn í Skólabæ síðastliðinn sunnudag, þann 21. desember.
Á alþjóðadegi fatlaðra, miðvikudaginn 3. desember, var í annað skipti úthlutað styrkjum til blindra og sjónskertra nemenda til náms við Háskóla Íslands. Styrkirnir voru veittir úr Þórsteinssjóði og afhenti forseti Menntavísindasviðs, Jón Torfi Jónasson, þá við hátíðlega athöfn á Háskólatorgi.
Á Háskólahátíð í dag var lýst kjöri þriggja heiðursdoktora við Háskóli Íslands. Þeir eru Søren Langvad, Jónatan Þórmundsson og Sigurður Líndal.
Þann 22. september 2008 var úthlutað í fyrsta skipti úr Rannsóknasjóði Ingibjargar R. Magnúsdóttur. Doktorsnemarnir Eydís K. Sveinbjörnsdóttir og Jóhanna Bernharðsdóttir hlutu styrk úr sjóðnum að upphæð kr. 375.000 hvor.
Stofnskrá nýs styrktarsjóðs, sem kenndur er við Watanabe, var undirrituð af stofnandanum Toshizo Watanabe og Kristínu Ingólfsdóttur, rektor Háskóla Íslands, við hátíðlega athöfn í Háskóla Íslands í dag.