Three grants for research on neural controlled prosthetic limbs have been bestowed by the Össur and Ottobock Research Trust Fund at the University of Iceland. This is the first time allocations are made from the fund, and the combined amount of the three grants is 117 million ISK/850.000 USD
Þrír styrkir til doktorsrannsókna í ljósmóður- og hjúkrunarfræði voru veittir úr Rannsóknasjóði Ingibjargar R. Magnúsdóttur við Háskóla Íslands þegar 50 ára afmæli kennslu í hjúkrunarfræði við skólann var fagnað í Hátíðasal Aðalbyggingar föstudaginn 29. september.
Jón Valur Björnsson, nemandi á þriðja ári í stærðfræði við Raunvísindadeild Háskóla Íslands, hefur hlotið viðurkenningu úr Verðlaunasjóði Sigurðar Helgasonar prófessors fyrir frábæran námsárangur.
Veittir hafa verið fjórir styrkir til doktorsnema og fræðafólks á Menntavísindasviði Háskóla Íslands úr Sjóði Steingríms Arasonar. Jón Atli Benediktsson, rektor HÍ, afhenti styrkina við hátíðlega athöfn í Stakkahlíð við lok opnunarmálstofu Menntakviku, árlegrar ráðstefnu Menntavísindasviðs.
Doktorsverkefni þriggja nemenda á Menntavísindasviði HÍ sem snerta leiklist í stærðfræðikennslu, áhrif næringarfræðslu á fæðuöryggi viðkvæmra hópa og áhrif leiðtoganáms Menntafléttu á kennsluhætti og stöðu skóla hafa hlotið styrk úr Styrktar- og rannsóknarsjóði Þuríðar J. Kristjánsdóttur.
Doktorsnemarnir Freyja Jónsdóttir, Kristrún Ýr Holm og Oddný Björgvinsdóttir, sem starfa við Lyfjafræðideild Háskóla Íslands, hafa hlotið viðurkenningu úr Verðlaunasjóði Bergþóru og Þorsteins Schevings Thorsteinssonar lyfsala við Háskóla Íslands.
Ágústa Eyjólfsdóttir, Birta Rakel Óskarsdóttir, Bjarki Leó Snorrason og Katrín Hólmgrímsdóttir, öll þriðja árs nemar í læknisfræði við Háskóla Íslands, hafa hlotið styrk úr Menntasjóði Læknadeildar til að vinna að BS-rannsóknarverkefni við erlenda háskóla.
Þrjú verkefni hafa hlotið styrk úr Sjóði Páls Guðmundssonar frá Rjúpnafelli við Háskóla Íslands. Styrkhafar eru Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum, Birna Bjarnadóttir, rannsóknasérfræðingur við Mála- og menningardeild Háskóla Íslands, og Ingi Björn Guðnason, bókmenntafræðingur og staðarhaldari á Hrafnseyri.
Þrír styrkir hafa verið veittir til doktorsnema úr Menntasjóði Hugvísindasviðs Háskóla Íslands. Styrkhafar eru Pontus Erik Gunnar Järvstad, doktorsnemi í sagnfræði, Rósa María Hjörvar, doktorsnemi í almennri bókmenntafræði, og Sylvia Marsibil Bates, doktorsnemi í sagnfræði.
Viðurkenningu Nýsköpunarsjóðs dr. Þorsteins Inga Sigfússonar við Háskóla Íslands árið 2023 hlýtur fyrirtækið Atmonia ehf. Helga Dögg Flosadóttir, rannsóknarstjóri Atmonia, tók við viðurkenningunni úr hendi dr. Jóns Atla Benediktssonar, rektors Háskóla Íslands, við hátíðlega athöfn 5. júní síðastliðinn.
16 students and academics at the University of Iceland and 6 Japanese students and academics will receive grants from the University of Iceland's Watanabe Trust Fund this year.
Þrír styrkir hafa verið veittir úr Minningarsjóði Aðalsteins Kristjánssonar við Háskóla Íslands til rannsókna í raunvísindum.