Veittur hefur verið styrkur úr Sjóði Páls Guðmundssonar frá Rjúpnafelli til stuðnings útgáfu The Icelandic Heritage in North America sem kemur út hjá University of Manitoba Press á þessu ári.
Birna Bjarnadóttir, rannsóknalektor við Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur, hefur hlotið styrk úr Sjóði Páls Guðmundssonar frá Rjúpnafelli við Háskóla Íslands, til rannsóknar á arfi íslenskunnar í Vesturheimi meðal barna íslenskra innflytjenda.
Rannsókn á áhrifum Vináttuforvarnarverkefnis Barnaheilla gegn einelti á samskipti í barnahópum hefur hlotið styrk úr Styrktarsjóði Margaretar og Bents Schevings Thorsteinssonar við Háskóla Íslands. Anna Magnea Hreinsdóttir, aðjunkt við Menntavísindasvið Háskóla Íslands hlaut styrkinn.
Svala Sverrisdóttir og Vigdís Gunnarsdóttir, nemendur í stærðfræði við Háskóla Íslands, hafa hlotið viðurkenningu úr Verðlaunasjóði Sigurðar Helgasonar prófessors fyrir frábæran námsárangur og er þetta í fimmta skipti sem úthlutað er úr sjóðnum.
Tvö rannsóknarverkefni sem snerta þróun íslenskukennslu fyrir fjöltyngd grunnskólabörn og foreldra þeirra hljóta styrk úr Íslenskusjóðnum við Háskóla Íslands. Þetta er í fyrsta skipti sem úthlutað er úr sjóðnum. Heildarupphæð styrkja nemur tveimur milljónum króna.
Ellefu styrkir hafa verið veittir úr Styrktarsjóði Áslaugar Hafliðadóttur til verkefna sem öll miða að því að efla íslenska tungu á tímum hraðra tæknibreytinga.
Þrír styrkir hafa verið veittir úr Sjóði Sigríðar Lárusdóttur við Háskóla Íslands til rannsókna sem snerta hné- og mjaðmaskiptaaðgerðir, sarkmein og tæknilausn til að spá fyrir um áhættu fólks á mjaðmarbroti.
Tvö doktorsverkefni sem snúa að fjölmenningu og virkri og skapandi hugsun hljóta styrk úr Sjóði Steingríms Arasonar í ár. Styrkjum var úthlutað við hátíðlega athöfn í húsnæði Menntavísindasviðs Háskóla Íslands fimmtudaginn 10. júní síðastliðinn, en þetta var í þriðja sinn sem styrkir eru veittir úr sjóðnum.
Tvö doktorsverkefni sem snúa að stéttarstöðu foreldra af erlendum uppruna og stefnumótun í framhaldsskólum hljóta styrk úr Styrktar- og rannsóknarsjóði Þuríðar J. Kristjánsdóttur í ár.
Þrír styrkir voru veittir til doktorsnema úr Menntasjóði Hugvísindasviðs vorið 2021.
Sigurður Reynir Gíslason, jarðefnafræðingur og vísindamaður við Jarðvísindastofnun Háskólans, hefur hlotið viðurkenningu úr Nýsköpunarsjóði dr. Þorsteins Inga Sigfússonar við Háskóla Íslands. Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, afhenti viðurkenninguna við hátíðlega athöfn á afmælisdegi Þorsteins Inga 4. júní síðastliðinn.
Tveir styrkir hafa verið veittir úr Minningarsjóði Aðalsteins Kristjánssonar til rannsókna í raunvísindum.